Ítalía og Svíþjóð mætast öðru sinni

Fjórir leikir fóru fram á Evrópumóti kvenna í gær þegar 16-liða úrslit mótsins héldu áfram. Mikil spenna var í tveimur leikjanna en Ítalía og Pólland unnu sannfærandi sigra.

Búist var við töluverðri spennu í leikjum Hollands gegn Slóveníu og Tékklands gegn Svíþjóð og varð það raunin. Holland vann slóvenska liðið eftir oddahrinu en liðin höfðu skipst á að vinna hrinurnar fram að henni. Svíþjóð vann svo glæsilegan sigur gegn heimaliði Tékklands en leikið var í Brno. Isabelle Haak hélt uppteknum hætti og skoraði nánast að vild en hún endaði leikinn með 31 stig. Pólland vann Portúgal sannfærandi en hrinurnar voru þó nokkuð jafnar. Að lokum vann Ítalía auðveldan sigur gegn Búlgaríu.

Í 8-liða úrslitunum mætast sigurvegarar gærdagsins innbyrðis. Holland mætir Póllandi og Ítalía mætir Svíþjóð. Ítalía og Svíþjóð mættust einnig í riðlakeppninni en þar hafði Ítalía betur, 3-0.

Í dag fara síðustu tveir leikir 16-liða úrslitanna fram en þá mætast annars vegar Belgía og Þýskaland en hins vegar Tyrkland og Azerbaijan. Keppni heldur svo áfram strax á morgun þegar 8-liða úrslitin hefjast. Serbía mætir þá Grikklandi og Ítalía mætir Svíþjóð. Seinni tveir leikir 8-liða úrslitanna fara fram á fimmtudag. Mótinu lýkur um helgina en undanúrslit fara fram á laugardag og leikið verður um brons og til úrslita á sunnudag.

Úrslit gærdagsins – 31. ágúst

Holland 3-2 Slóvenía (25-18, 19-25, 25-21, 29-31, 15-9). Alls skoruðu fimm leikmenn 20 stig eða meira í leiknum en stigahæstar hjá Hollandi voru Elles Dambrink með 24 stig og Indy Baijens með 22 stig.

Ítalía 3-0 Búlgaría (25-18, 25-13, 25-13). Ekaterina Antropova skoraði 18 stig fyrir Ítalíu, þar af 6 beint út uppgjöf.

Pólland 3-0 Portúgal (25-18, 25-17, 25-23). Magdalena Stysiak skoraði 22 stig fyrir Pólland.

Tékkland 0-3 Svíþjóð (19-25, 23-25, 21-25). Isabelle Haak skoraði 31 stig fyrir Svíþjóð.

Leikir dagsins – 1. september

13:00 Belgía – Þýskaland

16:00 Tyrkland – Azerbaijan