Ítalía og Pólland spila til úrslita í VNL karla 2025

Það verða Ítalía og Pólland sem mætast í úrslitaleik VNL karla 2025 eftir sigra í undanúrslitum í dag.

Ítalía og Slóvenía mættust í fyrri leik undanúrslita í dag en Ítalía vann þann leik 3-1 (2522, 2225, 2521, 2518). Stigahæstur í leiknum var Alessandro Michieletto leikmaður Ítalíu með 26 stig. Stigahæstur í liði Slóveníu var Rok Možič með 14 stig.

Seinni leikur dagsins var viðureign Brasilíu og Póllands og unnu Pólland þann leik nokkuð óvænt 3-0 (2826, 25-19, 25-21). Stigahæstur í liði Póllands var Kewin Sasak með 18 stig. Stigahæstur í liði Brasilíu var Darlan Souza með 16 stig.

Það verða því Pólland og Ítalía sem mætast í úrslitaleik VNL 2025 en leikurinn fer fram sunnudaginn 3.ágúst kl 11:00