Tveir leikir fóru fram á HM í dag þegar 8-liða úrslitin hófust. Ítalir mættu Belgum öðru sinni á mótinu og Pólland mætti Tyrklandi.
Ítalía og Belgía mættust í riðlakeppninni þar sem að Belgía fór með 3-2 sigur af hólmi. Ítalir virtust staðráðnir í að hefna fyrir það og byrjuðu af miklum krafti. Ítalska liðið valtaði yfir Belgana í fyrstu hrinu og virtust hafa fundið taktinn á ný eftir sveiflukennda spilamennsku framan af móti. Þetta breyttist ekki mikið þegar leið á leikinn og hafði Ítalía góð tök á Belgunum. Ítalir unnu leikinn auðveldlega og eru því komnir í undanúrslit mótsins.
Pólverjar mættu svo Tyrkjum í seinni leik dagsins en Pólland átti flottan leik. Tyrkir höfðu staðið sig mjög vel á mótinu en gríðarsterkt pólskt lið reyndist of mikið fyrir þá. Pólland vann fyrstu hrinuna auðveldlega og þó að Tyrkir hafi komist betur í gang eftir hana náðu þeir ekki að svara almennilega. Pólland vann sannfærandi 3-0 sigur og verður því um að ræða stórslag í undanúrslitum þegar Pólland og Ítalía mætast.
Ítalía 3-0 Belgía (25-13, 25-18, 25-18). Roberto Russo var stigahæstur hjá Ítalíu með 12 stig. Ferre Reggers var með 13 stig fyrir Belgíu.

Pólland 3-0 Tyrkland (25-15, 25-22, 25-19). Wilfredo Leon og Jakub Kochanowski skoruðu 13 stig hvor fyrir Pólland en Adis Lagumdzija var stigahæstur hjá Tyrklandi með 12 stig.
8-liða úrslit – Fimmtudagur 25. september
Tékkland – Íran 7:30
Bandaríkin – Búlgaría 12:00