Undanúrslitin á HM karla fóru fram í dag með tveimur æsispennandi leikjum.
Tékkland 1-3 Búlgaría (20-25, 25-23, 21-25, 22-25)
Þessi áhugaverði leikur var æsispennandi og var mikið jafnræði með liðunum. Búlgaría tók 0-1 forystu eftir góðan lokasprett í fyrstu hrinunni en Tékkland svaraði með naumum sigri í annarri hrinunni. Tékkarnir höfðu frumkvæðið framan af þriðju hrinunni en eftir miðja hrinu voru þeir búlgörsku mun sterkari. Þeir kláruðu svo leikinn 1-3 eftir jafna fjórðu hrinu. Heilt yfir var Búlgaría betra liðið en Tékkland gerði þeim erfitt fyrir.
Lukas Vasina skoraði 17 stig og Jan Galabov bætti við 13 stigum fyrir Tékkland. Patrik Indra, þeirra helsti sóknarmaður á mótinu, var aðeins með 10 stig sem verður að teljast lítið á hans mælikvarða. Alex Nikolov hélt áfram að raða inn stigum fyrir Búlgaríu og skoraði 31 stig í leiknum. Enginn hefur skorað meira í einum leik á þessu heimsmeistaramóti en Ferre Reggers hafði áður skorað 30 stig gegn Ítalíu.

Pólland 0-3 Ítalía (21-25, 22-25, 23-25)
Stórleikur dagsins hófst á leiðinlegum fréttum fyrir pólska aðdáendur en Bartosz Kurek, fyrirliði liðsins, virtist ekki leikfær vegna meiðsla. Engu að síður byrjaði Pólland leikinn afar vel en smám saman komst Ítalía betur inn í leikinn. Ítalía seig fram úr í lok fyrstu hrinu og tók 0-1 forystu. Önnur hrinan var andstæða þeirrar fyrstu þar sem að Ítalía byrjaði vel og Pólland nálgaðist þegar leið á hrinuna. Undir lokin kom Francesco Sani inn í uppgjöf fyrir Ítalíu og með hann í uppgjafarreitnum skoruðu Ítalir þrjú síðustu stigin og leiddu 0-2.
Pólland tók aftur við sér í þriðju hrinunni og léku vel alla hrinuna. Því miður fyrir þá áttu Ítalir nánast óaðfinnanlegan leik og eftir æsispennandi lokakafla vann Ítalía með minnsta mun. Ítalir unnu leikinn því 0-3 og mæta Búlgaríu í úrslitum. Wilfredo Leon skoraði 14 stig fyrir Pólland en Yuri Romanó var stigahæstur á vellinum með 15 stig fyrir Ítalíu.