Ítalía og Brasilía leika til úrslita í VNL kvenna

Það verða Ítalía og Brasilía sem leika til úrslita í VNL kvenna í ár en liðin tryggðu sér í dag sæti í úrslitaleiknum.

Undanúrslit hófust þegar heimastúlkur frá Póllandi tóku á móti þeim ítölsku en Ítalía fór þar með sigur 3-0 (25-18, 25-16, 25-14) fyrir framan 11.000 áhorfendur í Atlas Arena í Łódź.

Stigahæst í liði Ítalíu var eins og svo oft áður Paola Egonu með 17 stig. Stigahæst í liði Póllands var fyrirliðinn Agnieszka Korneluk með 11 stig.

 

Seinni undanúrslitaleikurinn var svo viðureign Brasilíu og Japan en sá leikur bauð uppá töluvert meiri spennu. Leikurinn fór alla leið í 5 hrinur þar sem Brasilía hafði að lokum betur 3-2 (2325, 2521, 2518, 1925, 158). Stigahæst í liði Brasilíu var Gabriela Guimarães (Gabi) með 25 stig. Stigahæst í liði Japan var Yukiko Wada með 20 stig.

 

Það verða því Ítalía og Brasilía sem mætast í úrslitum VNL í ár en Ítalía eru ríkjandi meistarar. Úrslitaleikurinn fer fram á morgun, sunnudaginn 27. júlí kl 18:00