Tveir leikir fóru fram í 8 liða úrslitum VNL karla, en úrslitakeppnin fer fram í borginni Ningbo Beilun í Kína.
Fyrri leikur dagsins var viðureign Ítalíu og Kúbu en Ítalía sigraði þá viðureign 3-1 (25–18, 25–19, 20–25, 25–21). Lið Kúbu hefur komið nokkuð á óvart í keppninni í ár en ítalir reyndust þeim of sterkir.
Stigahæstur í leiknum var Marlon Yant leikmaður Kúbu með 21 stig. Stigahæstur í liði Ítalíu var Alessandro Michieletto með 17 stig.
Í seinni viðureign dagsins tóku heimamenn frá Kína á móti Brasilíu og þrátt fyrir öfluga byrjun í leiknum tókst heimamönnum ekki að standa í gestunum. Brasilía fór með nokkuð öruggan sigur að hólmi 3-1 (29–31, 25–19, 25–16, 25–21).
Stigahæstur í leiknum var Alan Souza leikmaður Brasilíu með 26 stig. Stigahæstur í liði Kína var Zihua Wen með 15 stig.
Á morgun mætast svo:
- Frakkland – Slóvenía, 07:00
- Japan – Pólland, 11:00