Ítalía með fullt hús stiga

Evrópumót kvenna heldur áfram og styttist í lokasprettinn í riðlakeppninni. Ítalía vann stórleikinn í D-riðli í gær og kláraði riðlakeppnina með fullt hús stiga.

Nokkur lið hafa leikið alla fimm leiki sína í riðlakeppninni en þar á meðal eru ítölsku stúlkurnar. Þær töpuðu hrinu gegn Frakklandi í gær en unnu engu að síður 3-1 sigur. Þó nokkur lið eru enn taplaus en það eru Tyrkland, Pólland, Serbía, Belgía og Holland. Hörð barátta er um síðustu sætin í 16-liða úrslitunum en í öllum riðlum keppninnar hafa þrjú lið tryggt sig áfram. Fjögur lið fara áfram úr hverjum riðli og því eitt sæti laust í hverjum riðli fyrir sig.

Stöðuna í riðlunum má sjá með því að smella hér.

Í dag, fimmtudag, lýkur keppni í B-riðli og D-riðli en hinir tveir riðlarnir klárast á föstudag. 16-liða úrslitin hefjast strax á sunnudag en leikið verður í Istanbúl (Tyrklandi) og Brno (Tékklandi). Allir leikir keppninnar eru í beinni útsendingu á EuroVolleyTV.

A-riðill

Slóvenía 3-2 Lettland (23-25, 19-25, 25-15, 25-13, 15-12). Maša Pucelj skoraði 20 stig fyrir Slóveníu en Paula Nikola Neciporuka skoraði sömuleiðis 20 stig fyrir Lettland.

Þýskaland 1-3 Tyrkland (21-25, 27-25, 20-25, 19-25). Melissa Vargas skoraði 23 stig fyrir Tyrkland.

B-riðill

Austurríki 2-3 Búlgaría (26-24, 25-15, 15-25, 16-25, 4-15). Kora Schaberl skoraði 26 stig fyrir Austurríki.

Serbía 3-0 Grikkland (25-22, 25-13, 25-18). Tijana Boskovic skoraði 20 stig fyrir Serbíu.

C-riðill

Spánn 1-3 Portúgal (26-24, 23-25, 19-25, 20-25). Ana Escamilla skoraði 22 stig fyrir Spán.

Belgía 3-0 Azerbaijan (25-19, 25-22, 25-23). Britt Herbots skoraði 22 stig fyrir Belgíu.

D-riðill

Frakkland 1-3 Ítalía (19-25, 25-19, 23-25, 19-25). Paola Egonu skoraði 20 stig fyrir Ítalíu.

Slóvakía 3-0 Svartfjallaland (25-21, 25-19, 25-11). Zuzana Sepelova og Karin Sunderlikova skoruðu 18 stig hvor fyrir Slóvakíu.