Ítalía mætir Finnlandi í 8-liða úrslitum

Annar dagur 16-liða úrslitanna fór fram í dag á EM karla í blaki. Dagurinn byrjaði á afar óvæntum úrslitum en sérstaklega mikil spenna var í fyrstu leikjum dagsins.

Keppnisdagurinn hófst með viðureign Úkraínu og Rúmeníu en bæði lið hafa átt flott mót. Úkraína náði 2. sæti í erfiðum B-riðli en Rúmenía kom á góðu skriði inn í 16-liða úrslitin eftir sigur gegn Frakklandi í lokaleik D-riðils. Úrslit leiksins komu verulega á óvart en Rúmenía vann 3-0 sigur eftir hörkuleik. Strax í kjölfarið hófst leikur Finnlands og Grikklands sem var einnig afar spennandi. Grikkir byrjuðu vel en liðin skiptust á að vinna næstu hrinur. Úrslitin réðust í oddahrinu þar sem að þeir finnsku höfðu betur, 15-12.

Frakkland og Portúgal mættust í þriðja leik dagsins þar sem Frakkland var mun sigurstranglegra liðið. Þeir frönsku höfðu góð tök á leiknum en Portúgal hélt þó vel í við þá. Frakkland sigldi sannfærandi sigri heim þrátt fyrir jafnan leik og vann 3-0. Þar með er ljóst að Rúmenía og Frakkland mætast í 8-liða úrslitum og geta Frakkar hefnt fyrir tapið í riðlakeppninni. Lokaleikur dagsins var á milli Ítalíu og Danmerkur en Danir höfðu átt glæsilegt mót fram að þessu. Ítalir voru hins vegar á heimavelli og töluvert líklegri sigurvegarar. Fyrsta hrina var spennandi en eftir að Ítalía kláraði hana naumlega var sigur þeirra aldrei í hættu. Ítalía vann 3-0 sigur og mætir Finnlandi í 8-liða úrslitum.

Á morgun fara tveir leikir fram í 16-liða úrslitunum sem lýkur þar með. Belgía og Tékkland mætast í fyrri leik dagsins en um kvöldið mætast Slóvenía og Serbía. Keppni í 8-liða úrslitum hefst svo strax á þriðjudag með tveimur leikjum.

Úrslit dagsins – Sunnudagur 20. september

Úkraína 0-3 Rúmenía (22-25, 21-25, 28-30). Oleh Plotnytskyi skoraði 15 stig fyrir Úkraínu en Alexandru Rata skoraði 16 stig fyrir Rúmeníu.

Finnland 3-2 Grikkland (22-25, 25-16, 22-25, 25-23, 15-13). Bræðurnir Luka og Nooa Marttila skoruðu 21 stig hvor fyrir Finnland en Angelos Markou skoraði 20 stig fyrir Grikkland.

Frakkland 3-0 Portúgal (25-21, 25-22, 25-21). Mathis Henno og Trévor Clevenot skoruðu 12 stig hvor fyrir Frakkland en Alexandre Ferreira og Lourenço Martins skoruðu 13 stig hvor fyrir Portúgal.

Ítalía 3-0 Danmörk (25-22, 25-16, 25-11). Yuri Romanò skoraði 14 stig fyrir Ítalíu en Mads Kyed Jensen skoraði einnig 14 stig fyrir Danmörku.

Leikir morgundagsins – Mánudagur 21. september

14:00 Belgía – Tékkland

19:00 Slóvenía – Serbía