Ítalía hafði betur gegn Svíþjóð í Gautaborg

Á þriðja keppnisdegi EM mætti sænska landsliðið ofjarli sínum þegar liðið tapaði gegn Ítalíu. Liðin höfðu bæði unnið tvo fyrstu leiki sína í D-riðlinum.

Úrslit sunnudagsins voru í grófum dráttum eftir bókinni en þó var nokkuð um hörkuleiki. Tyrkland og Slóvenía mættust í baráttu um efsta sæti A-riðils en þar hafði Tyrkland betur 3-1. Tyrkneska liðið leikur á heimavelli og er til alls líklegt á mótinu. Lið Azerbaijan, sem er einnig á heimavelli í sínum riðli, vann þá annan sigur sinn á mótinu og er ósigrað í C-riðlinum.

Mánudagur gæti orðið afar áhugaverður en eftir hann munu öll lið hafa leikið að lágmarki tvo leiki á mótinu. Leikir mánudagsins gætu orðið ansi jafnir en miðað við fyrstu þrjá keppnisdagana virðist ómögulegt að útiloka nein lið. Línur fara smám saman að skýrast í baráttunni um sæti í útsláttarkeppninni en átta lið munu fara heim að riðlakeppni lokinni.

Gaman er að segja frá því að ein af öflugustu leikmönnum mótsins, Ekaterina Antropova, fæddist hér á Íslandi. Hún ber tvöfalt ríkisfang (Rússland og Ítalía) en leikur með ítalska landsliðinu. Hún hefur nú þegar skorað yfir 50 stig í þremur sigurleikjum Ítalíu.

A-riðill

Lettland 1-3 Þýskaland (15-25, 18-25, 25-13, 15-25). Marta Levinska skoraði 24 stig fyrir Lettland og var stigahæst allra í leiknum.

Slóvenía 1-3 Tyrkland (21-25, 25-22, 17-25, 16-25). Melissa Vargas skoraði 19 stig fyrir Tyrkland.

B-riðill

Grikkland 3-1 Búlgaría (25-20, 21-25, 25-18, 25-23). Iva Dudova skoraði 23 stig fyrir Búlgaríu.

Tékkland 1-3 Serbía (19-25, 17-25, 25-16, 17-25). Tijana Boskovic átti frábæran leik og skoraði 27 stig fyrir Serbíu.

C-riðill

Portúgal 0-3 Belgía (16-25, 22-25, 11-25). Pauline Martin skoraði 16 stig fyrir Belgíu.

Spánn 0-3 Azerbaijan (16-25, 22-25, 15-25). Yelizaveta Ruban skoraði 20 stig fyrir Azerbaijan.

D-riðill

Frakkland 3-0 Króatía (25-16, 25-17, 25-22). Cyrielle Depie skoraði 19 stig fyrir Frakkland.

Svíþjóð 0-3 Ítalía (18-25, 23-25, 14-25). Ekaterina Antropova skoraði 18 stig en þriðja leikinn í röð var hún stigahæst hjá Ítalíu.