Í dag fór fram úrslitaleikur á heimsmeistaramóti kvenna þar sem Tyrkland og Ítalía mættust en mótið fór fram í Tælandi.
Tyrkland komst í úrslit eftir 3-1 sigur á Japan í undanúrslitaleik á meðan Ítalía hafði betur gegn Brasilíu 3-2.
Ítalir byrjuðu leikinn í dag vel með sigri í æsispennandi fyrstu hrinu 25-23. Allt bensín virtist svo búið hjá ítölum sem töpuðu næstu hrinu stórt 25-13. Melissa Teresa Vargas leikmaður Tyrklands átti góðan leik í annarri hrinu og reyndist ítölum erfið.
Þriðja hrina var svo æsispennandi og endaði með sigri Ítalíu 26-24 í hrinu sem einkenndist af löngum skorpum og góðum varnarleik beggja liða. Paola Ogechi Egonu leikmaður Ítalíu hrökk þá í gang og skoraði 13 stig.

Tyrkland tók svo fjórðu hrinu 25-19 og jöfnuðu leikinn 2-2. Oddahrinana var í höndum Ítalíu frá byrjun en tyrkir komust ekki í gegnum öfluga hávörn Ítalíu. Hrinunni lauk með sigri Ítalíu 15-8.
Tyrkland – Ítalía 2-3 (23–25, 25–13, 24–26, 25–19, 8–15)
Stigahæst í leiknum í dag var Melissa Teresa Vargas leikmaður Tyrklands með 33 stig en hún endar sem stigahæsti leikmaður mótsins með 151 stig.
Stigahæst í liði Ítalíu var Paola Ogechi Egonu með 22 stig.

Ítalía bætir því við sínum öðrum gullverðlaunum á heimsmeistaramóti en liðið varð síðast heimsmeistarar árið 2002.