Í dag lauk HM karla með bronsleiknum og úrslitaleiknum sjálfum. Frábæru móti lauk með tveimur glæsilegum viðureignum.
Tékkland 1-3 Pólland (18-25, 25-23, 22-25, 21-25)
Bronsleikurinn fór fram snemma í morgun en þar mætti spútniklið Tékklands stórveldi Pólverja. Allar hrinur leiksins voru jafnar en líkt og í undanúrslitum gærdagsins byrjaði Pólland vel í hvert einasta skipti. Fyrsta hrinan var auðveld fyrir pólska liðið en í kjölfarið komu þrjár mjög spennandi hrinur. Tékkland jafnaði leikinn með því að vinna aðra hrinu en Pólverjar unnu næstu tvær. Pólland tryggði sér því 1-3 sigur og fyrstu bronsverðlaun liðsins á HM. Jafnframt er 4. sæti langbesti árangur Tékklands á HM.
Lukas Vasina átti frábæran leik og skoraði 19 stig fyrir Tékkland. Næstur kom Patrik Indra með 11 stig. Í liði Póllands var Wilfredo Leon nánast óstöðvandi og skoraði 26 stig.

Búlgaría 1-3 Ítalía (21-25, 17-25, 25-17, 10-25)
Í úrslitaleiknum mættust tvö spennandi lið en Búlgaría hefur slegið í gegn á mótinu. Ítalir eru ríkjandi heimsmeistarar og áttu magnaðan undanúrslitaleik gegn Póllandi. Búlgaría byrjaði leikinn vel og Alex Nikolov hélt áfram að raða inn stigum. Ítalir tóku fljótt við sér og náðu yfirhöndinni um miðja hrinu. Ítalía vann hrinuna sannfærandi eftir klaufagang hjá Búlgaríu undir lokin.
Önnur hrina var svipuð þar sem liðin skiptust á að eiga góða kafla. Munurinn varð aldrei mikill en aftur hafði Ítalía yfirhöndina. Undir lokin tók Yuri Romanò málin í sínar hendur og skoraði 5 ása í röð. Sá sprettur kláraði hrinuna nánast og Ítalía leiddi 0-2. Allt virtist falla með Ítalíu í hrinunni og búlgarska liðið virtist við það að gefast upp.

Varnarleikur og undirdekkun var frábær hjá Ítalíu og Yuri Romanò bar uppi sóknarleik liðsins. Í liði Búlgaríu var Alex Nikolov enn og aftur aðalmaðurinn en öflugur leikur hans dugði ekki einn og sér gegn ítalska liðinu. Í stað þess að gefa eftir í þriðju hrinunni vaknaði búlgarska liðið og setti gífurlega pressu á Ítalíu með sterkum uppgjöfum. Búlgaría leiddi allt frá upphafi hrinunnar og minnkaði muninnn í 1-2.
Ítalía virtist eiga aukagír og liðið byrjaði fjórðu hrinuna frábærlega. Þeir leiddu 3-9 og gerðu Búlgaríu erfitt fyrir með sterkum uppgjöfum og hávörn. Í seinni hluta fjórðu hrinunnar var það Mattia Bottolo sem fann taktinn með frábærum uppgjöfum og fór staðan úr 10-17 í 10-25. Ítalía vann því sannfærandi sigur eftir hörkuleik framan af. Ítalía er því heimsmeistari annað skiptið í röð og í fimmta sinn frá upphafi.
Aleksandar Nikolov skoraði 23 stig fyrir Búlgaríu og næstur kom Martin Atanasov með 11 stig. Yuri Romanò var frábær í liði Ítalíu og skoraði 22 stig og Mattia Bottolo bætti við 18 stigum.
Draumalið mótsins var tilkynnt að úrslitaleiknum loknum og má sjá liðið hér:
Kantsmassari: Aleksandar Nikolov (Búlgaría)
Miðjumaður: Aleks Grozdanov (Búlgaría)
Miðjumaður: Jakub Kochanowski (Pólland)
Frelsingi: Fabio Balaso (Ítalía)
Uppspilari: Simone Giannelli (Ítalía)
Díó: Yuri Romanò (Ítalía)
MVP / Kantsmassari: Alessandro Michieletto (Ítalía)