Næstu vikurnar verða þeir Ólafur Jóhann Júlíusson og Sævar Már Guðmundsson við störf á vegum CEV í Challenge Cup.
Báðir koma þeir til með að dæma í 16.liða úrslitum Challenge Cup karla en Ólafur verður aðstoðardómari í leik Bigbank Tartu (Eistland) og Lindemans AALST (Belgía). Leikurinn fer fram í Tartu í Eistlandi þann 21.janúar.
Sævar Már kemur til með að vera aðaldómari í leik Norwid CZESTOCHOWA (Pólland) og Conqueridor VALENCIA (Spánn). Leikurinn fer fram í borginni Czestochowa í Póllandi þann 29.janúar.
