Ísland vann SCA U20 eftir fimm hrinu úrslitaleik

Mynd: Sævar Már Guðmundsson

Ísland tryggði sér sigur á SCAU20 kvenna með 3–2 sigri á San Marino í úrslitaleik. Íslenska liðið vann fyrstu tvær hrinurnar en San Marino jafnaði metin áður en Ísland vann afgerandi sigur í oddahrinu. Hrinutölur voru 31–29, 25–20, 20–25, 20–25 og 15–7.

Fyrsta hrina leiksins var afar jöfn og þurfti upphækkun til að knýja fram úrslit. Ísland hafði að lokum betur, 31–29, og fylgdi því eftir með 25–20 sigri í annarri hrinu. Staðan var því orðin 2–0 og íslenska liðið einni hrinu frá sætinu á EM.

San Marino sneri hins vegar taflinu við og vann bæði þriðju og fjórðu hrinu með sömu tölum, 25–20. Þar með var staðan jöfn, 2–2, og úrslit leiksins réðust í oddahrinu.

Ísland byrjaði oddahrinuna af miklum krafi og öflugar uppgjafir skiluðu íslenska liðinu góðri stöðu þegar skipt var um vallarhelming. Sigurinn var í raun aldrei í hættu og fór svo að lokum að Ísland hafði betur 15-7.

Stigahæstar í leiknum voru þær Þorbjörg Rún Emilsdóttir og Inga Björg Brynjúlfsdóttir með 25 stig hvor.

Ísland hefur því tryggt sig áfram á lokamót EM U20 sem fer fram á Ítalíu og Möltu 8.-28. júlí 2027. Þetta er annað árið í röð sem Ísland kemst á lokamót unglinga.