Ísland tekur þátt í SCA U20

Íslenska stúlknalandsliðið í flokki U20 (2008 og yngri) halda í dag til San Marino á Smáþjóðamót en mótið fer fram dagana 2.-4. október.

Ísland tekur þátt í B-riðli í SCA keppninni en hún er hluti af undankeppni Evrópumótsins 2027 í þessum aldursflokki. Hinar þjóðirnar í riðlinum eru Skotland, Írland og Norður-Írland en í A-riðlinum eru San Marino, Mónakó og Færeyjar. Íslenska liðið á tvo leiki á föstudag og einn á laugardag en leikið verður um sæti á sunnudag. Íslenska hópinn má sjá með því að smella hér.

Hægt verður að fylgjast með úrslitum á mótinu á heimasíðu CEV en þar má einnig finna leikjaplan mótsins auk fleiri upplýsinga.

Ísland tekur þátt í fleiri mótum í október en U17 lið kvenna fer á NEVZA mót í Ikast, Danmörku 11.-15. október. Þá fer U20 lið drengja til Skotlands dagana 15.-19. október þar sem liðið tekur þátt í SCA U20 móti, sambærilegu stúlknamótinu í San Marino.