Ísland hefur leik í lokakeppni EM

Stúlknalandslið Íslands í flokki U18 heldur á lokamót EM í vikunni en liðið tryggði sér sæti þar fyrr á árinu. Mótið fer fram í Litháen og Lettlandi en riðill Íslands er í Riga, Lettlandi.

Hópurinn heldur út aðfaranótt þriðjudags 30. júní og er fyrsti keppnisdagur miðvikudagur 1. júlí. Ísland mætir þá stórliði Ítalíu og byrjar mótið því á afar erfiðum leik. Ítalía vann til bronsverðlauna á EM 2024 í þessum aldursflokki enda sannkölluð stórþjóð í blakinu.

May be an illustration of text that says 'HÓPURINN Riga, Lettland Kvenna Kara Margrét Árnadóttir Kolfinna Hafpórsdóttir Ása Margrét Kristjánsdóttir porbjörg Rún Emilsdóttir Ağalheiur Guồmundsdóttir Bryndis Ása pórsdóttir Emilia Dís Júlíusdóttir Sylvia Osk Jónsdóttir Alexandra Björg Andradóttir Inga Björg Brynjúlfsdóttir Katla Fönn Valsdóttir Katrin Embla Sigurõardóttir Anika Snaedis Gautadóttir Hulda Kristin Björnsdóttir CEV U18 CEVU18 U18 Chamionsi Volley Volleyball European Championship 2026'
Leikmannahópur Íslands (Mynd: BLÍ)

Í undirbúningi liðsins lék stúlknaliðið meðal annars æfingaleik gegn A-landsliði Íslands sem lauk nýverið keppni í European League. Íslensku stelpurnar mega hins vegar búast við mjög krefjandi en skemmtilegum leikjum gegn sterkustu liðum Evrópu. Leikið er í tveimur 8 liða riðlum þar sem allir mæta öllum. Ísland fær því að minnsta kosti 7 leiki í keppninni.

Eins og leikjafjöldinn gefur til kynna verður leikjaplanið afar þétt en liðið á frídaga 4. júlí og 7. júlí. Leiki Íslands má sjá hér (íslenskir tímar):

Miðvikudagur 1. júlí: Ítalía – Ísland 9:30

Fimmtudagur 2. júlí: Lettland – Ísland 17:00

Föstudagur 3. júlí: Tékkland – Ísland 9:30

 

Sunnudagur 5. júlí: Spánn – Ísland 12:00

Mánudagur 6. júlí: Belgía – Ísland 14:30

 

Miðvikudagur 8. júlí: Tyrkland – Ísland 14:30

Fimmtudagur 9. júlí: Pólland – Ísland 12:00

Thelma Dögg Grétarsdóttir og Jóna Margrét Arnarsdóttir þjálfa liðið en Emil Gunnarsson er þeim til aðstoðar. Brynjar Óli Kristjánsson fer með sem sjúkraþjálfari liðsins og Helga Björg Pálmadóttir er liðsstjóri.