Ísland bíður enn eftir fyrsta sigrinum

Mynd: CEV

Þriðja daginn í röð lék U18 lið Íslands á lokamóti EM kvenna. Í dag var mótherjinn Tékkland sem hafði tapað báðum leikjum sínum líkt og Ísland. Erfitt var þó að lesa í það þar sem Tékkland hafði mætt Ítalíu og Tyrklandi, tveimur afar sterkum liðum.

Leikurinn fór rólega af stað hjá stelpunum okkar en þær voru lengi í gang. Tékkland náði smám saman öruggri forystu í fyrstu hrinunni og vann hana sannfærandi. Enn gekk brösuglega í annarri hrinu þar sem vondur kafli um miðja hrinu gerði út um hrinuna. Aftur vann Tékkland örugglega og hafði þar með náð 0-2 forystu í leiknum.

Allt annað var að sjá til Íslands í þriðju hrinunni og nú var það íslenska liðið sem leiddi framan af. Staðan leit afar vel út þegar liðið leiddi 18-15 en sterkar uppgjafir tékknesku stúlknanna gerðu íslenska liðinu afar erfitt fyrir. Tékkland skoraði 8 stig í röð og þrátt fyrir flottan endasprett náðu íslensku stelpurnar ekki að jafna leikinn. Tékkland vann því 0-3 sigur í leiknum. Þorbjörg Rún Emilsdóttir var valin leikmaður leiksins hjá Íslandi.

Mótshaldarar verðlauna bestu leikmenn beggja liða eftir hvern leik. Að þessu sinni var Þorbjörg Rún valin best úr liði Íslands.

Ísland 0-3 Tékkland (18-25, 11-25, 23-25). Þorbjörg Rún Emilsdóttir skoraði 8 stig fyrir Ísland en Katrín Embla Sigurðardóttir og Inga Björg Brynjúlfsdóttir komu næstar með 6 stig hvor. Anezka Siruckova skoraði 15 stig fyrir Tékkland.

Nú tekur við stutt frí hjá stelpunum þar sem laugardagurinn 4. júlí er ekki keppnisdagur. Það er þó skammt stórra högga á milli en á sunnudag mæta íslensku stelpurnar Spánverjum. Sá leikur hefst klukkan 12:00 að íslenskum tíma.