Sænska stórstjarnan Isabelle Haak framlengir samning sinn við ítalska liðið Imoco Volley Conegliano um eitt tímabil til viðbótar.
Sögusagnir voru á kreiki um að Haak myndi semja við tyrkneska liðið Galatasaray Daikin núna í Janúar, 2,5 árs samningur sem myndi skila Haak rúmum 350 milljónum króna.
Hin 26 ára Isabelle Haak hefur verið ein af bestu leikmönnum heims undanfarin ár og muna íslenskir leikmenn eftir henni frá Nevza mótum yngri landsliða. Haak fór frá Svíþjóð í atvinnumennsku 2016 þá 17 ára gömul þegar hún samdi við franska liðið Béziers VB, ári seinna gekk hún svo til liðs við ítalska liðið Savino Del Bene Scandicci sem eru ríkjandi heimsmeistarar félagsliða. Ítalska liðið Imoco Volley Conegliano hafa nú staðfest á Haak verði hjá þeim út næsta tímabil en hún hefur leikið með liðinu frá 2022.

Verðlaunalisti Haak er nánast óteljandi enda hefur hún unnið nánast öll þau verðlaun sem í boði eru með sínum félagsliðum.