Íran vann Serbíu eftir háspennu

Í dag lauk 16-liða úrslitum á HM með síðustu tveimur leikjunum. Seinni leikur dagsins var einn sá mest spennandi á mótinu hingað til.

Tékkland og Serbía stóðu sig vel í riðlakeppninni og skildu Brasilíu eftir með sárt ennið. Liðin voru ekki talin líkleg til afreka í aðdraganda mótsins en hafa komið skemmtilega á óvart. Svipaða sögu má segja af Túnis sem fór áfram úr hnífjöfnum A-riðli á kostnað Filippseyja og Egyptalands. Íran fylgdi þeim einnig upp úr riðlinum og mættu þeir Serbíu.

Fyrri leikur dagsins var viðureign Túnis og Tékklands þar sem að Tékkar byrjuðu betur í nokkuð jöfnum leik. Túnis náði sér ekki almennilega á strik fyrr en í þriðju hrinu en eftir mikla spennu vann Tékkland með minnsta mun og tryggði sér 3-0 sigur.

Uppspilarinn Lubos Bartunek (9) hefur leikið vel fyrir Tékkland sem eru komnir í 8-liða úrslit (Mynd: FIVB)

Í seinni leiknum byrjaði Serbía vel en Íran gaf ekkert eftir. Serbía vann fyrstu hrinu naumlega áður en Íran jafnaði leikinn 1-1. Þriðja hrinan var hnífjöfn og vann Serbía eftir upphækkun. Íranir létu þetta ekki á sig fá og jöfnuðu leikinn aftur með sterkum sigri í annarri hrinu og réðust úrslitin í oddahrinu. Lauk henni með sigri Íran eftir æsispennandi og tilfinningaþrunginn leik.

Túnis 0-3 Tékkland (19-25, 18-25, 23-25). Oussama Ben Romdhane og Ali Bongui skoruðu 10 stig hvor fyrir Túnis. Hjá Tékklandi var Patrik Indra stigahæstur með 14 stig.

Serbía 2-3 Íran (25-23, 19-25, 26-24, 22-25, 9-15). Drazen Luburic var öflugur í liði Serbíu og skoraði 27 stig. Þeir Ali Hajipour og Morteza Sharifi skoruðu 23 stig hvor fyrir Íran.

Þar með er ljóst hvaða lið fara í 8-liða úrslit HM þetta árið. Leikirnir fram á miðvikudag og fimmtudag en tveir leikir verða spilaðir hvorn keppnisdaginn. Leikið verður til undanúrslita á laugardag og úrslita á sunnudag.

Svona lítur útsláttarkeppnin út þegar 8-liða úrslitin fara af stað.

8-liða úrslit – Miðvikudagur 24. september

Ítalía – Belgía 7:30

Pólland – Tyrkland 12:00