Alls fóru fjórir leikir fram í Unbroken deild karla í dag en töluverð spenna var í öllum leikjunum.
Veislan hófst í Hveragerði þar sem Hamar tók á mótti Þrótti Fjarðabyggð. Jafnræði var með liðunum allan leikinn en Hvergerðingar unnu fyrstu hrinu eftir upphækkun. Aftur vann Hamar í annarri hrinu eftir jafnan leik en í þriðju hrinu leiddu Þróttarar undir lokin. Hamar skoraði þó síðustu þrjú stigin og tryggðu sér nauman sigur. Hamar vann því leikinn 3-0 þrátt fyrir mikla spennu.
Vestramenn tóku á móti HK á Ísafirði þar sem að gestirnir byrjuðu leikinn mun betur. HK vann fyrstu hrinu sannfærandi en eftir hnífjafna aðra hrinu náði Vestri að jafna leikinn 1-1. Vestri náði góðum takti í þriðju hrinu og þá sérstaklega eftir að stöðva þurfti leikinn vegna rafmagnsleysis. Vestri endaði á að vinna hrinuna þægilega og leiddi 2-1. Heimamenn leiddu stærstan hluta fjórðu hrinu en HK-ingar voru aldrei langt undan. Ísfirðingar kláruðu hrinuna og sóttu því 3-1 sigur og dýrmæt þrjú stig.
Í Mosfellsbæ tók Afturelding á móti Völsungi. Gestirnir léku afar vel í fyrstu hrinu og náðu mest 8 stiga forystu. Mosfellingar minnkuðu muninn smám saman en Völsungur vann þó fyrstu hrinuna. Afturelding komst vel í gang þegar leið á hana og héldu áfram að gefa í þegar kom inn í aðra hrinu. Hana unnu heimamenn nokkuð auðveldlega og jöfnuðu leikinn 1-1.
Þriðja hrina var æsispennandi og skiptust liðin á að hafa forystuna eftir miðbik hrinunnar. Afturelding var sterkari undir lokin og vann 29-27 sigur sem gaf þeim 2-1 forystu í leiknum. Húsvíkingar virtust alveg búnir á því eftir þennan jafna kafla og vann Afturelding auðveldlega í fjórðu hrinu. Þeir hirða því öll þrjú stigin og halda í við liðin í efri hlutanum.
Atli Fannar Pétursson skoraði 19 stig fyrir Aftureldingu og Hafsteinn Már Sigurðsson bætti við 17 stigum. Hjá Völsungi var Juan Sebastian stigahæstur með 21 stig en Þórarinn Örn Jónsson skoraði 10 stig.
Lokaleikur dagsins var toppslagur Þróttar Reykjavíkur og KA. Fyrir leikinn voru Þróttarar með 14 stig af 18 mögulegum en KA með 18 stig af 21 mögulegu. Á toppi deildarinnar var Hamar með 20 stig. Þróttarar byrjuðu betur á heimavelli og leiddu alla fyrstu hrinuna. Þeir unnu hana án teljandi vandræða en KA mætti öflugra til leiks í næstu hrinu. Önnur hrinan var jöfn allt fram að lokum hennar þar, Þróttur átti góðan kafla og skoraði 5 stig í röð. Liðið kom sér þannig í 2-0 forystu.
Enn var jafnræði með liðunum í þriðju hrinu leiksins og þurfti á upphækkun að halda til að útkljá sigur í henni. KA vann 27-29 sigur og hélt lífi í leiknum. Fjóðra hrinan byrjaði ekki vel fyrir KA og leiddu Þróttarar 14-6 eftir góðan kafla. KA náði að laga stöðuna um miðja hrinu en Þróttur hélt forystunni. Heimamenn tryggðu sér nokkuð sannfærandi 3-1 sigur og blanda sér þar af fullum þunga í toppbaráttuna.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – 8. nóvember
Hamar 3-0 Þróttur F (26-24, 25-21, 26-24)
Vestri 3-1 HK (19-25, 26-24, 25-15, 25-20)
Afturelding 3-1 Völsungur (22-25, 25-16, 29-27, 25-13)
Þróttur R 3-1 KA (25-20, 25-19, 27-29, 25-20)
Sú skemmtilega staða er uppi þessa helgina að allar viðureignir eru tvíhöfðar ef svo mætti kalla. Það verður því endurtekið efni á sunnudag þar sem öll ofangreind til endurtaka leikinn frá því í dag.