Öðrum keppnisdegi á EM kvenna er lokið en þar var nokkuð meira um óvænt úrslit en fyrsta keppnisdaginn.
Slóvenía, sem vann til silfurverðlauna í European League í sumar, vann óvæntan 3-0 sigur gegn Þýskalandi. Þá fóru fjórir leikir alla leið í oddahrinu, þar á meðal leikur Slóvakíu og Svíþjóðar. Sænska liðið vann 3-2 sigur og er því enn ósigrað á heimavelli í Gautaborg.
Enn er of snemmt til að rýna í stöðu riðlanna en hvert lið leikur fimm leiki í riðlakeppninni. Einhver liðanna hafa þegar leikið tvo leiki en meirihlutinn hefur aðeins leikið einn leik til þessa. Í dag, sunnudag, mætast Slóvenía og Tyrkland í stórleik A-riðils en Svíþjóð og Ítalía mætast í D-riðli.
A-riðill
Þýskaland 0-3 Slóvenía (22-25, 21-25, 20-25). Fatoumatta Sillah skoraði 24 stig fyrir Slóveníu.
Ungverjaland 0-3 Pólland (12-25, 24-26, 20-25). Anett Németh var stigahæst á vellinum en hún skoraði 22 stig fyrir Ungverjaland.
B-riðill
Úkraína 2-3 Grikkland (23-25, 25-23, 25-12, 22-25, 10-15). Martha Evdokia Anthouli skoraði 28 stig fyrir Grikkland.
Austurríki 0-3 Tékkland (16-25, 17-25, 17-25). Kora Schaberl skoraði 16 stig fyrir Austurríki og var stigahæst á vellinum.
C-riðill
Belgía 3-2 Spánn (25-15, 18-25, 23-25, 25-17, 15-8). Britt Herbots skoraði 25 stig fyrir Belgíu en Julia De Paula Viana skoraði sömuleiðis 25 stig fyrir Spán.
Rúmenía 2-3 Holland (21-25, 28-26, 15-25, 25-22, 9-15). Indy Baijens skoraði 20 stig fyrir Holland.
D-riðill
Ítalía 3-0 Svartfjallaland (25-13, 25-20, 25-19). Ekaterina Antropova skoraði 13 stig fyrir Ítalíu og var stigahæst, líkt og í fyrsta leik liðsins.
Slóvakía 2-3 Svíþjóð (22-25, 16-25, 25-14, 25-22, 6-15). Isabelle Haak rauf 30-stiga múrinn öðru sinni þegar hún skoraði 38 stig fyrir Svíþjóð.