Holte keppti í gær sinn fyrsta leik í 16 liða úrslitum áskorendabikar CEV á heimavelli. Þær mættu serbneska liðinu Crvena Zvezda Belgrad. Gestirnir byrjuðu leikinn afar vel, komust snemma yfir í fyrstu hrinu og héldu uppi mikilli pressu. Sú hrina endaði með sigri Crvena Zvezda, 17–25.
Holte gáfust ekki upp og önnur hrinan var hnífjöfn. Holte náðu forskoti, 20–15, en Crvena jafnaði fljótt. Liðin skiptust síðan á að vinna stig þar til Holte náðu að klára hrinuna 26–25.
Í þriðju hrinu gengu hlutirnir ekki jafn vel hjá Holte og Crvena Zvezda unnu hana nokkuð örugglega 15–25.
Holte voru með yfirhöndina í fjórðu hrinu og komust í 19–13, allt leit út fyrir að Holte myndu jafna leikinn, en Crvena Zvezda náðu nokkrum mikilvægum stigum í röð og jöfnuðu í 20–20. Eftir mikla spennu unnu gestirnir hrinuna 23–25 og þar með leikinn 1–3.
Næsti leikur fer fram í Serbíu þann 15. janúar. Þar þurfa Holte að vinna annaðhvort 3–1 eða 3–0 til að það verði gullhrina um sæti í næstu umferð.