Holte IF danskir bikarmeistarar!

Um helgina fór fram bikarhelgi í Danmörku, svokallað Final 4. Á laugardeginum voru undanúrslitaleikirnir leiknir og á sunnudeginum fóru fram leikir um þriðja sætið og sjálfir úrslitaleikirnir.

Í kvennaflokki mætti Holte IF, þar sem Sara Ósk leikur, ASV Elite í undanúrslitum. Holte tryggði sér sæti í úrslitum með 3–1 sigri. Í úrslitaleiknum mættu þær Køge 2, liði skipuðu fyrrverandi innanhússblakörum sem nú spila strandblak. Nokkrir leikmenn liðsins teljast meðal þeirra bestu í Danmörku og því ljóst að um hörkulið var að ræða og mátti búast við spennandi leik.

Køge byrjaði leikinn af krafti og komst í 1–6 forystu. Holte náði þó smám saman að vinna sig inn í leikinn og jafnaði stöðuna í 12–12. Eftir það skiptust liðin á að skora þar til Holte náði yfirhöndinni undir lok hrinunnar og vann hana 25–22.

Önnur hrina var afar jöfn frá upphafi til enda og skoruðu liðin til skiptis allan tímann. Með sterkri sókn og yfirvegun í lokin náði Holte að loka hrinunni 26–24 og komast í 2–0 forystu.

Í þriðju hrinu héldu liðin jöfnu í byrjun, en Køge náði fljótlega yfirhöndinni og komst í 10–15 og síðar 14–20. Þá settu Holte í lás og jafnaði leikinn í 21–21, en Køge fann aftur taktinn og vann hrinuna 25–21.

Holte komu ákveðnar inn í fjórðu hrinu og tóku snemma forystu, 6–1 og síðar 11–4. Með sterkri vörn og kraftmikilli sókn gerðu þær Køge erfitt fyrir og leiddu 18–8. Holte hélt taktinum allan tímann og gáfu Køge ekkert eftir. Holte vann hrinuna sannfærandi 25–11 og þar með leikinn 3–1. Með sigrinum tryggði Holte sér bikarmeistaratitilinn annað árið í röð og í 18. skipti í sögu félagsins.

Í karlaflokki mættust Gentofte og Køge 2 í úrslitaleiknum. Þar hafði Køge 2 betur eftir langan og æsispennandi leik sem fór í fimm hrinur, þar sem úrslitin réðust 17–15 í oddahrinu.

Hreinn Kári leikur með Middelfart, sem tapaði undanúrslitum gegn Gentofte 1–3. Middelfart lék því um þriðja sætið gegn Ikast KFUM, þar sem Ikast hafði betur í fimmtu hrinu, 15–11. Middelfart endaði því í fjórða sæti að þessu sinni.