Holland og Japan tryggja sig áfram í 8 liða úrslit á HM kvenna

Hollenska liðið fagnar einu af sínum stigum í maraþon sigri á Serbíu. (Mynd: Volleyball World)

Fyrstu leikjum í 16 liða úrslitum á Heimsmeistaramóti kvenna í Tælandi er lokið.

2 leikir voru á dagskrá í dag og má sjá úrslitin hér:

Holland – Serbía 3-2 (2725, 2624, 2225, 2025, 15-11)

Stigahæst í leiknum var Aleksandra Uzelac leikmaður Serbíu með 31 stig. Stigahæst í liði Hollands var Nika Daalderop með 19 stig.

Japan – Tæland 3-0 (2520, 2523, 2523)

Stigahæst í leiknum var Mayu Ishikawa leikmaður Japan með 14 stig. Stigahæst í liði Tælands var Chatchu-On Moksri með 12 stig.

Mayu Ishikawa leikmaður Japan sækir á hávörn Tælands. (Mynd: Volleyball World)

Leikir í 16 liða úrslitum 30.ágúst eru eftirfarandi:

  • Ítalía – Þýskaland, 10:00
  • Pólland – Belgía, 13:30