HM kvenna – leikdagur 2: Úrslit dagsins

Tijana Boškovic leikmaður Serbíu (Mynd, Volleyball World)

Öðrum keppnisdegi á Heimsmeistaramóti kvenna lauk í dag en eins og áður hefur komið fram fer mótið fram í Tælandi.

8 leikir voru á dagskrá í dag og má sjá úrslitin hér:

Kanada – Búlgaría 3-1 (25–23, 25–18, 23–25, 25–18)

Stigahæst í leiknum var Andrea Mitrovic leikmaður Kanada með 17 stig. Stigahæst í liði Búlgaríu var Mikaela Stoyanova með 15 stig.

Dóminíska Lýðveldið – Kólumbía 3-0 (25–15, 25–18, 25–13)

Stigahæst í leiknum var Brayelin Elizabeth Martinez leikmaður Dóminíska Lýðveldisins með 20 stig. Stigahæst í liði Kólumbíu var Ana Karina Olaya Gamboa með 11 stig.

Japan – Kamerún 3-0 (25–21, 25–17, 25–19)

Stigahæst í leiknum var Miku Akimoto leikmaður Japans með 18 stig. Stigahæst í liði Kamerún var Carine Blamdai með 11 stig.

Þýskaland – Kenía 3-0 (25-22, 25-8, 25-20)

Stigahæst í leiknum var Veronica Adhiambo Oluoch leikmaður Kenía með 19 stig. Stigahæstar í liði Þýskalands voru Lina Alsmeier og Emilia Weske með 13 stig hvor.

Tyrkland – Spánn 3-0 (25-18, 25-20, 25–23)

Stigahæst í leiknum var Yaprak Erkek leikmaður Tyrklands með 15 stig. Stigahæst í liði Spánar var Ana Escamilla Serrano með 13 stig.

Kína – Mexíkó 3-1 (22–25, 26–24, 25–10, 25–18)

Stigahæst í leiknum var Yushan Zhuang leikmaður Kína með 23 stig. Stigahæst í liði Mexikó var Sofia Maldonado Diaz með 22 stig.

Serbía – Úkraína 3-0 (25-21, 25-19, 25–17)

Stigahæst í leiknum var Tijana Boškovic leikmaður Serbíu með 19 stig. Stigahæst í liði Úkraínu var Anna Artyshuk með 13 stig.

Pólland – Víetnam 3-1 (23–25, 25–10, 25–12, 25–22)

Stigahæst í leiknum var Magdalena Stysiak leikmaður Póllands með 29 stig. Stigahæst í liði Víetnam var Thi Nhu Quynh Vi með 20 stig.

Mikaela Stoyanova leikmaður Búlgaríu (Mynd: Volleyball World)

 

Leikir morgundagsins eru þessir:

  • Tékkland – Slóvenía, 09:00
  • Púertó Ríkó – Grikkland, 09:00
  • Holland – Egyptaland, 10:00
  • Ítalía – Kúba, 10:00
  • Bandaríkin – Argentína, 12:30
  • Brasilía – Frakkland, 12:30
  • Tæland – Svíþjóð, 13:30
  • Belgía – Slóvakía, 13:30