Nú þegar heimsmeistaramóti kvenna í blaki er nýlokið taka karlarnir við. HM karla fer fram á Filippseyjum og hefst föstudaginn 12. apríl með leik heimamanna gegn Túnis.
Fyrirkomulag mótsins er sambærilegt kvennamótinu þar sem að 32 þjóðir taka þátt í lokamóti keppninnar. Liðunum er skipt upp í fjögurra liða riðla en riðlarnir eru því 8 talsins. Flestar sterkustu þjóðirnar koma frá Evrópu en þó eru nokkrar undantekningar frá því. Til að mynda má nefna stórlið Brasilíu og Bandaríkjanna. Ríkjandi heimsmeistarar Ítalíu hafa lent í skakkaföllum undanfarnar vikur en Pólverjar, silfurliðið frá 2022, þykja til alls líklegir.
Riðlarnir eru misjafnir eins og þeir eru margir en E-riðill er eins konar dauðariðill mótsins að þessu sinni. Þar eru þrjár sterkar Evrópuþjóðir en Búlgaría, Þýskaland og Slóvenía mætast þar. Auk þeirra er lið Chile í E-riðli en eflaust verða þeir auðveld bráð fyrir fyrrnefndar Evrópuþjóðir. Ef Brasilía og Argentína eru frátalin hafa lið frá Suður-Ameríku ekki gert garðinn frægan undanfarin ár.
Sýnt verður frá mótinu á VBTV sem FIVB (alþjóða blaksambandið) heldur utan um. Hægt er að finna ýmsar upplýsingar á heimasíðu mótsins en með því að smella hér má sjá leikjaplan mótsins sem og annað mikilvægt efni er tengist mótinu.

Farið verður yfir helstu úrslit mótsins hér á síðunni. Eftir æsispennandi HM kvenna er um að gera að halda áfram að fylgjast með hágæða blaki.
Opnunarleikur föstudag 12. september: Filippseyjar – Túnis 11:00