Einn leikur fór fram í Kjörísbikar kvenna í dag þegar 1.deildar lið UMFG tók á móti efsta liði Unbroken deildar kvenna, HK.
Fyrirfram var óhætt að spá því að HK færi nokkuð örugglega í gegnum þennan leik, enda HK með 9 stiga forskot á toppi Unbroken deildar kvenna á meðan UMFG er 8 sætum neðar, eða í 3.sæti í 1.deild kvenna. Í gegnum tíðina hefur hinsvegar myndast gífurlega góð stemning í íþróttahúsinu í Grundarfirði þegar liðið tekur þátt í bikarkeppninni.
Leikurinn í dag náði hinsvegar aldrei neinni spennu. HK vann öruggan sigur 3-0 (25-16, 25-15, 25-9) HK eru því komnar áfram í undanúrslit Kjörísbikar kvenna.