HK og Þróttur Fjarðarbyggð skiptu með sér sigrum í Digranesi

Mynd: HK Blak

Tvíhöfði fór fram í Digranesi í kvöld þegar HK tók á móti Þrótti Fjarðarbyggð í Unbroken deildum karla og kvenna.

Það voru karlarnir sem réðu á vaðið og mættust í kaflaskiptum leik. HK byrjaði leikinn af miklum krafti og voru með mikla yfirburði í fyrstu hrinu leiksins. HK vann fyrstu hrinuna 25-13. HK virtist ætla að endurtaka leikinn í annarri hrinu en heimamenn voru fljótt komnir í 5-1. Gestirnir náðu hinsvegar að koma sér inní leikinn þegar leið á hrinuna og úr verð hörkuspennandi hrina sem endaði að lokum með sigri Þróttar 27-25 og leikar orðnir jafnir.

Þriðja hrina reyndist ætla að verða áframhald á annarri hrinu og var nokkuð jöfn framan af. HK voru hinsvegar sterkari aðilinn og unnu þriðju hrinu 25-19. Aftur jöfnuðust hinsvegar leikar og Þróttur vann æsispennandi fjórðu hrinu 29-27 og tryggðu sér oddahrinu. Áframhaldandi spenna var í oddahrinunni sem Þróttur Fjarðarbyggð vann með minnsta mun, 15-13 og tryggðu sér sigur í leiknum 3-2.

Stigahæstur í leiknum var Michal Jan Potempa leikmaður HK með 20 stig. Stigahæstur í liði Þróttar var Raul Garcia Asensio með 15 stig.

Þróttur Fjarðarbyggð er eftir sigurinn með 10 stig í 6. sæti deildarinnar og nálgast Vestra sem eru í 5. sæti með 18 stig. Þróttur á hinsvegar tvo leiki til góða. HK situr enn í neðsta sæti deildarinnar með 5 stig.


Seinni leikur kvöldsins var svo viðureign liðanna í Unbroken deild kvenna. Þar var búist við öruggum sigri HK sem hefur verið með töluverða yfirburði í vetur. HK mætti til leiks án Helenu Einarsdóttur og þá byrjaði Matthildur Einarsdóttir, uppspilari liðsins í stöðu díó í fjarveru systur sinnar.

HK voru ekki sannfærandi í fyrstu hrinu leiksins og nýttu Þróttur sér það og náðu góðum baráttu sigri 25-18. Öflugar hávarnir og góðar varnir aftur á velli skiluðu verðskulduðum sigri Þróttar í fyrstu hrinu og ljóst að með þessu áframhaldi yrði róðurinn erfiður fyrir HK. Heimastúlkur sýndu hinsvegar sitt rétta andlit í annarri hrinu og náðu fljótt miklum yfirburðum. Sóknarleikur liðsins varð mun beittari og lauk hrinunni með yfirburðar sigri 25-8.

HK héldu áfram að sýna mikla yfirburði í þriðju hrinu og áttu gestirnir engin svör. HK vann þriðju hrinu með enn meiri yfirburðum, 25-5. HK nýtti tækifærið í fjórðu hrinu og gerði breytingar á byrjunarliði sínu. Engin breyting varð hinsvegar á yfirburðum liðsins en HK vann afar sannfærandi sigur 25-10 og leikinn þar með 3-1.

Stigahæstar í leiknum voru Matthildur Einarsdóttir og Þórdís Guðmundsdóttir leikmenn HK með 20 stig hvor. Stigahæst í liði Þróttar Fjarðarbyggðar var Heiða Elísabet Gunnarsdóttir með 9 stig.

HK er því eftir sigurinn með 37 stig á toppi Unbroken deildar kvenna, 9 stigum á undan KA sem sitja í 2.sæti með 28 stig en eiga einn leik til góða. Þróttur Fjarðarbyggð situr hinsvegar enn í neðsta sæti með 1 stig eftir 13 leiki.