HK og KA með sigra í Unbrokendeild kvenna

Tveir leikir fóru fram í Unbrokendeild kvenna í dag. Völsungur tók á móti toppliði HK og þá mættust Afturelding og KA í Mosfellsbæ.

HK og KA eru örugg með sæti í úrslitakeppninni en Völsungur, Þróttur Reykjavík/BFH og Afturelding berjast um síðustu tvö sætin í úrslitakeppninni.

Fyrri leikur dagsins var viðureign Völsungs og HK, liðin í efsta og þriðja sæti Unbrokendeildar kvenna. HK hefur haft mikla yfirburði í deildinni í vetur og aðeins tapað einum leik, en sá leikur var einmitt gegn Völsungi á Húsavík í Nóvember, en þeim leik tapaði HK 2-3. HK eiga því harma að hefna í leik dagsins.

HK byrjaði leikinn vel og var með góð tók á fyrstu hrinunni, eftir jafna byrjun þá gaf HK í og náði góðu forskoti. Heimakonur reyndu að halda í við gestina en það dugði skammt og vann HK fyrstu hrinu leiksins 25-19. Önnur hrina varð hinsvegar æsispennandi og skiptust liðin á stigum út alla hrinuna. Heimastúlkur voru staðráðnar í því að gefa ekki mörg færi á sér og unnu þær mikinn baráttu sigur 26-24. Þrátt fyrir jafna byrjun í þriðju hrinu þá unnu Völsungur yfirburðar sigur 25-11 og voru komnar í ansi góða stöðu.

Eins og svart á hvítu þá snerist blaðið algjörlega við í fjórðu hrinu. HK voru með öll völd á vellinum og líkt og Völsungur gerði í þriðju hrinu þá vann HK yfirburðar sigur í fjórðu hrinu 25-13. Leikurinn því á leið í oddahrinu og ljóst að hvorugt liðið ætlaði að gefa eftir. Oddahrinan var í járnum frá fyrsta stigi til þess síðasta og fór hún alla leið í upphækkun þar sem HK hafði að lokum betur 17-15.

Völsungur – HK 2-3 (19-25, 26-24, 25-11, 13-25, 15-17)


Seinni leikur dagsins var viðureign Aftureldingar og KA í Mosfellsbæ en Afturelding þarf nauðsynlega að ná sér í stig úr næstu leikjum til að eiga möguleika á að komast í úrslitakeppnina. KA þarf svo öll þau stig sem eru í boði til að eiga möguleika á að ná HK í baráttunni um deildarmeistaratitilinn. Það var því ljóst að bæði lið þyrftu að gefa allt í leik dagsins til að ná úrslitum.

Ekki fór þetta þó vel af stað fyrir heimastúlkur sem lentu 0-9 undir í fyrstu hrinu og ekkert virtist ganga upp gegn öflugu liði KA. KA liðið lék á alls oddi í fyrstu hrinu sem endaði með öruggum sigri 25-15. Þó nokkuð ljóst að Afturelding á nóg inni og mættu þær mun einbeittari til leiks í aðra hrinu. Afturelding virtist vera að ná góðum tökum á hrinunni þegar þær voru komnar yfir 16-8. Þá hrukku KA hinsvegar í gang og náðu ótrúlegum endurkomu sigri 26-24.

Afturelding hélt hinsvegar áfram af krafti og héldu sér inní leiknum með sigri í þriðju hrinu 25-17. Afturelding átti því möguleika á að fá eitthvað útúr leiknum en á sama tíma má KA liðið helst ekki við því að tapa stigum. KA komu einbeittar af stað í fjórðu hrinu og náðu fljótt góðum tökum á leiknum. Afturelding gaf hinsvegar ekkert eftir og héldu vel í við KA. Það reyndist hinsvegar ekki nóg og fór svo að KA vann fjórðu hrinu 25-20.

Afturelding – KA 1-3 (15-25, 24-26, 25-17, 20-25)

HK er eftir leiki dagsins enn á toppi deildarinnar, nú með 44 stig eftir 16 leiki. KA er enn í öðru sæti, nú með 40 stig eftir 16 leiki.