Í kvöld varð ljóst hvaða lið mætast í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki. Tveir oddaleikir fóru fram, annar í Digranesi en hinn í KA-heimilinu.
HK og Afturelding mættust í Digranesi en Afturelding vann fyrsta leik liðanna 2-3. HK svaraði með 0-3 sigri í Mosfellsbæ og leikurinn í kvöld var afar jafn til að byrja með. Liðin skiptust á að hafa nauma forystu en HK hafði betur og tók 1-0 forystu. Afturelding sneri dæminu við í annarri hrinu og leiddi 14-7 um miðja hrinuna. Þá kom frábær kafli hjá HK en mikil uppgjafapressa og öflug hávörn áttu stóran þátt í endurkomu HK. Heimakonur voru sterkari undir lokin og voru komnar í afar góða stöðu, 2-0 yfir.
HK hélt áfram að þjarma að gestunum í þriðju hrinu og leiddi allt frá upphafi. HK vann sannfærandi sigur og leikinn þar með 3-0. HK fer því í úrslit en Afturelding hefur lokið leik þetta tímabilið.
HK 3-0 Afturelding (25-23, 25-20, 25-18). Helena Einarsdóttir skoraði 21 stig fyrir HK en Alexia Joffrin skoraði 13 stig fyrir Aftureldingu.
KA byrjaði afar vel gegn Völsungi í kvöld í hinum oddaleiknum sem fram fór á Akureyri. Um einstefnu var að ræða í fyrstu hrinu sem KA vann afar auðveldlega. Völsungur svaraði á svipaðan hátt og vann þægilegan sigur í annarri hrinu til að jafna leikinn. Enn snerist dæmið við í þriðju hrinu þar sem KA vann aftur án nokkurra vandræða og ekki varð spennan meiri í fjórðu hrinu þar sem KA endurtók leikinn og leiddi frá upphafi hrinunnar. KA vann því 3-1 í sveiflukenndum leik og tryggði sér sæti í úrslitaeinvíginu.
KA 3-1 Völsungur (25-15, 19-25, 25-13, 25-17)
Þar með er ljóst að HK og KA mætast í úrslitum en þessi tvö lið börðust einnig um Unbroken deildarmeistaratitilinn og mættust í úrslitum Kjörísbikarsins. Úrslitaeinvígið hefst í næstu viku en fyrsti leikur fer fram þriðjudaginn 14. apríl. Leikið verður í Digranesi og verður það lið Íslandsmeistari sem vinnur fyrr þrjá leiki.