HK náði í sinn fyrsta sigur á Húsavík

Tveir leikir fóru fram í Unbroken deild karla í dag og voru úrslitin nokkuð óvænt.

Í fyrsta leik dagsins mætti HK á Húsavík þar sem Völsungur tók á móti Kópavogsdrengjunum. Fyrir leik var Völsungur í 6. sæti en HK í 8. og síðasta sæti deildarinnar. Gestirnir byrjuðu leikinn hins vegar afar vel og réðu ríkjum í fyrstu hrinunni. HK vann auðveldan sigur í fyrstu hrinu og héldu góðum takti í annarri hrinu sem vannst einnig. Völsungur sneri dæminu við í þriðju hrinu og vann nauman sigur. Staðan því orðin 1-2 og allt opið.

Það var þó aldrei vafi á því hvernig fjórðu hrinu myndi ljúka þar sem að HK gjörsigraði heimamenn. Þeir leiddu 4-12 og héldu öruggri forystu út hrinuna sem vannst 14-25. HK náði þar með í fyrsta sigur sinn á tímabilinu eftir að hafa verið stigalausir þangað til í dag. HK er enn í neðsta sætinu en Völsungur heldur 6. sæti með 7 stig.

Í Neskaupstað mættu Þróttarar liði KA. Þróttur var í 7. sæti fyrir leikinn en KA í 2. sætinu. Fyrsta hrina var eftir því þar sem að KA vann afar sannfærandi 15-25 sigur. Heimamenn voru hins vegar fljótir að koma sér aftur inn í leikinn og unnu aðra hrinu eftir upphækkun. KA náðu yfirhöndinni aftur með góðri þriðju hrinu en sveiflurnar héldu áfram og Þróttur F virtist vera að tryggja sér oddahrinu með góðri frammistöðu í fjórðu hrinunni.

Þróttur hafði 7 stiga forystu um miðja fjórðu hrinu en þá fór KA að saxa á forskotið. Upphækkun þurfti til að útkljá málin og að lokum vann KA og tryggði sér 1-3 sigur. Þar með er KA með 23 stig í 2. sæti deildarinnar en Þróttur F með 4 stig í 7. sæti, aðeins einu stigi á undan HK.

Á morgun fara einnig tveir leikir fram en Þróttur F og KA mætast öðru sinni. Þá mætast Vestri og Þróttur Reykjavík á Ísafirði.

Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Laugardagur 22. nóvember

Völsungur 1-3 HK (14-25, 22-25, 26-24, 14-25)

Þróttur Fjarðabyggð – KA (15-25, 27-25, 18-25, 27-29)