HK með óvæntan en öruggan sigur á Þróttir Reykjavík í Unbroken deild karla

Í gær fór fram einn leikur í Unbroken deild karla þegar Þróttur Reykjavík tók á móti HK.

HK var fyrir leikinn í neðsta sæti Unbroken deildar karla með 5 stig á meðan Þróttur Reykjavík var í 4.sæti með 40 stig og í haðri baráttu við Aftureldingu og KA um 2.-4. sæti. Það var því skiljanlega búist við nokkuð þæginlegum sigri Þróttar Reykjavíkur.

Sú varð ekki raunin því að HK sigraði leikinn nokkuð örugglega 3-0 (25-19, 25-18, 25-23). Það er sennilega óhætt að halda því fram að þarna hafi Þróttur Reykjavík verið komið með hugan við úrslitakeppnina því Þróttur hvíldi 4 af sínum lykilleikmönnum í leiknum.

Þróttur Reykjavík er því enn í 4.sæti með 40 stig og eiga aðeins 1 leik eftir í deildarkeppninni en þeir heimsækja Hamar í Hveragerði á föstudaginn en þar geta heimemenn tryggt sér deildarmeistaratitilinn með sigri.

HK á svo 2 leiki eftir í deildinni en þeir taka á móti KA um helgina í Digranesi.