Það var einn leikur á dagskrá í Unbrokendeild kvenna í kvöld þegar Þróttur Reykjavík/BFH tók á móti HK í Laugardalshöll.
Bæði lið höfðu fyrir þennan leik spilað tvo leiki. Sameiginlegt lið Þróttar Reykjavíkur og BFH hafði tapað báðum sínum leikjum 0-3 á meðan HK hafði unnið báða sína leiki 3-0. Það varð lítil breyting á því í kvöld en HK fór með nokkuð þægilegan sigur 3-0.
Þróttur Reykjavík/BFH – HK 0-3 (15-25, 18-25, 15-25)
HK situr þá á toppi Unbrokendeildar kvenna með 9 stig eftir 3 leiki og mæta næst Þrótti Fjarðarbyggð í tveimur leikjum í Neskaupstað um næstu helgi. Þróttur Reykjavík/BFH eru enn með 0 stig og mæta næst Aftureldingu sem hefur ekki enn hafið leik í Unbrokendeildinni þetta tímabilið.