Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í kvöld en Afturelding tók á móti HK í Varmá.
HK byrjaði leikinn af miklum krafti og unnu fyrstu hrinu með miklum yfirburðum 25-9. Afturelding náði aðeins að klóra í bakkann þegar leið á leikinn en HK fór þó með nokkuð öruggan sigur í næstu tveimur hrinum 25-14 og 25-19 og unnu leikinn þar með 3-0.
HK stekkur því aftur í efsta sæti Unbroken deildar kvenna með 24 stig eftir 8 leiki, stigi á undan KA sem eru með 23 stig. Afturelding situr hinsvegar í 5. og næst neðsta sæti með 8 stig eftir 9 leiki.
3 leiki fara fram í Unbroken deild kvenna um helgina.
22.11, Völsungur – HK
22.11, Þróttur Fjarðarbyggð – KA
22.11, Völsungur – Afturelding