HK með fullt hús stiga fyrir norðan

KA og HK mættust í dag að öðru sinni þessa helgina í Unbroken deild kvenna.

HK hafði betur í gær 3-0 og nokkuð ljóst að KA liðið ætlaði að hefna fyrir tap gærdagsins. Leikurinn fór vel af stað og voru liðin nokkuð jöfn í upphafi leiks. Það var ekki fyrr en um miðja hrinu sem HK náði að ýta aðeins frá sér og fór að lokum að HK sigraði fyrstu hrinu 25-19.

KA fór hinsvegar vel af stað í annarri hrinu og mættu grimmar til leiks. Öflugar uppgjafir Jónu Margrétar komu KA í 4-0. KA hélt forskotinu út hrinuna og fóru að lokum með sigur í annarri hrinu 25-17. Leikurinn hélt áfram að vera kaflaskiptur en HK byrjaði að þessu sinni betur í þriðju hrinu og voru komnar með gott forskot 7-1. HK var með töluverða yfirburði og öflug hávörn HK reyndist KA erfið. Þriðju hrinu lauk með sigri HK 25-12.

Þrátt fyrir ágætis byrjun KA í fjórðu hrinu þá hélt hávörn HK áfram að loka vel á sóknarleik KA og sömuleiðis var varnarleikur HK góður. Bæði lið sýndu reyndar góða varnar tilburði í leiknum og var mikið um langar skorpur.  HK hafði betur í fjórðu hrinu 25-20 og unnu leikinn því 3-1 og tryggja sér 6 stig af 6 mögulegum þessa helgina,

Stigahæst í leiknum var Julia Bonet leikmaður KA með 18 stig. Stigahæst í liði HK var Helena Einarsdóttir með 16 stig.

HK stendur því í efsta sæti Unbroken deildar kvenna með 31 stig eftir 11 leiki. KA er svo í öðru sæti með 28 stig eftir 12 leiki.

Einn leikur er eftir í Unbroken deild kvenna fyrir jólafrí en HK tekur á móti Þrótti Reykjavík/BFH 16.desember og geta þá farið inní jólafríið með 6 stiga forskot á toppnum.