HK með 6 stiga forskot á toppi Unbroken deildar kvenna eftir sigur í kvöld

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í kvöld en HK tók á móti Þrótti Reykjavík / BFH í Digranesi.

Þróttur Reykjavík/BFH byrjuðu leikinn vel og eftir jafna byrjun þá náðu gestirnir forskoti og voru yfir framan af hrinunni. HK sýndi hinsvegar reynslu sína og náðu að jafna 17-17 og eftir það höfðu þær góð tök á hrinunni sem endaði með sigri HK 25-20.

Aftur voru það hinsvegar gestirnir sem byrjuðu vel og fóru þær af miklum krafti inní aðra hrinu. HK tók leikhlé í stöðunni 1-5 en mestur var munurinn 6 stig. Aftur sýndu HK styrk sinn og hægt og rólega komu þær sér inní hrinuna. Við tök hörkuspennandi hrina þar sem að liðin skiptu með sér stigum allt að 25-25 þegar HK gekk á lagið og kláraði hrinuna 27-25 en nýkjörin blakkona ársins, Matthildur Einarsdóttir sló þá gratis bolta Þróttar beint í gólf.

HK gef svo aldrei færi á sér í þriðju hrinu sem lauk með sigri HK 25-18 en þjálfari liðsins gat leyft sér að skipta inn ungum leikmönnum.

HK fer því í jólafrí með 6 stiga forskot á toppi deildarinnar en deildin fer aftur af stað 16. janúar með leik HK og Þróttar Fjarðarbyggðar.

Staðan í Unbroken deild kvenna.