HK hafði betur í hörkuleik í Laugardalshöllinni

Einn leikur fór fram í Unbroken deild kvenna í kvöld þegar Þróttur Reykjavík/BFH tók á móti HK í Laugardalshöll.

HK hefur verið á mikilli siglingu í Unbroken deildinni í vetur og sat fyrir leikinn í toppsætinu með 40 stig eftir 14 leiki, liðið hafði aðeins tapað einum leik. Þróttur Reykjavík/BFH sat hinsvegar í 4.sæti með 16 stig eftir 13 leiki.

Systurnar Helena og Matthildur Einarsdætur voru ekki með HK í dag og ljóst að stór skörð þyrfti að fylla. Fyrsta hrina var æsispennandi og eftir að liðin höfðu skipst á að leiða þá hafði Þróttur R/BFH loks betur 25-23. HK kom til baka í annarri hrinu eftir að hafa verið undir megnið af hrinunni, HK náði að jafna 11-11 og eftir það tóku þær völdin og endaði önnur hrina með sigri HK 25-17.

Leikurinn snérist aftur við í þriðju hrinu en Þróttur R/BFH kom inn af miklum krafti og leiddu mest með 5 stigum. Allt leit út fyrir að heimakonur myndu sigla þessari hrinu í höfn en gestirnir voru ekki á sömu skoðun og sýndu frábæra baráttu og náðu að koma sér inní hrinuna þegar þær jöfnuðu 22-22. HK hélt svo út og sigraði þriðju hrinu 25-21. Spennan hélt áfram í fjórðu hrinu sem var æsispennandi en endaði með sigri Þróttar R/BFH 25-21 og ljóst að oddahrinu þurfti til að skilja liðin af.

Allt bensín virtist búið hjá heimakonum en HK vann oddahrinuna nokkuð örugglega, 15-8 og leikinn þar með 3-2.

Eftir sigurinn er HK með 42 stig á toppi deildarinnar eftir 15 leiki, 9 stigum á undan KA sem hafa leikið 13 leiki. Þróttur R/BFH eru enn í 4.sæti með  17 stig eftir 14 leiki.