Úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn í Unbroken deild kvenna fór fram í dag þegar HK og KA mættust í Digranesi. HK hafði tveggja stiga forskot fyrir leikinn sem þýddi að KA þurfti að vinna leikinn í dag 0-3 eða 1-3 til að stela efsta sætinu og tryggja sér titilinn.
KA byrjaði leikinn af krafti og leiddi allt frá upphafi fyrstu hrinu. HK náði að jafna á lokakaflanum en KA hélt út og náði 0-1 forystu í leiknum. Önnur hrina var mjög sveiflukennd og skiptust liðin á að ná 3-4 stiga forystu. HK stúlkur reyndust sterkari á lokakaflanum í þetta skiptið og jöfnuðu 1-1. Þar með þurfti HK að vinna eina hrinu til viðbótar til að tryggja sér titilinn.
Þriðja hrinan var æsispennandi enda mikið undir. KA leiddi framan af hrinu en HK tók forystuna um miðja hrinuna. Staðan var jöfn 22-22 þegar HK átti frábæran lokakafla og skoraði þrjú síðustu stigin. Þar með vann HK hrinuna og tryggði deildarmeistaratitilinn.
Bæði lið breyttu uppstillingum sínum töluvert í fjórðu hrinunni en HK reyndust sterkari og unnu leikinn 3-1. Liðið fagnaði svo innilega í leikslok þegar HK fékk deildarmeistarabikarinn afhentan. Volleyball.is óskar deildarmeisturum HK innilega til hamingju með titilinn!
Í hinum tveimur leikjum dagsins var lítið undir þar sem að lokastaða deildarinnar var ráðin. Völsungur hafði tryggt sér 3. sætið og Afturelding 4. sætið sem þýddi að Þróttur R/BFH missti af sæti í úrslitakeppninni. Þróttur Fjarðabyggð missti sömuleiðis af úrslitakeppninni þar sem liðið endaði í botnsæti deildarinnar.
Völsungur mætti Þrótti R/BFH á Húsavík en í gær vann Völsungur 3-0 í viðureign liðanna. Þróttarar mættu sterkari til leiks í dag og unnu sannfærandi sigur í fyrstu hrinu en heimakonur unnu aðra hrinu eftir miklar sveiflur. Völsungur vann einnig þá þriðju en Þróttur svaraði með auðveldum sigri í fjórðu hrinu. Völsungur kláraði leikinn svo af krafti og tryggði sér 3-2 sigur.
Þróttur Fjarðabyggð tók á móti Aftureldingu í Neskaupstað en Afturelding vann leik laugardagsins sannfærandi 1-3. Fyrsta hrinan var nokkuð jöfn en Afturelding vann þó nokkuð þægilegan sigur. Næstu tvær hrinur voru enn auðveldari fyrir gestina sem unnu afar öruggan 0-3 sigur.
Undanúrslitin í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn hefjast miðvikudaginn 1. apríl en þar mætast annars vegar HK (1. sæti) og Afturelding (4. sæti) en hins vegar KA (2. sæti) og Völsungur (3. sæti). Bikarkeppnin er þó næst á dagskrá en hún hefst á fimmtudag með undanúrslitum karlamegin. Kvennaliðin spila til undanúrslita á föstudag og leikið verður til úrslita á laugardag.
Úrslit dagsins í Unbroken deild kvenna – Sunnudagur 8. mars
Völsungur 3-2 Þróttur R/BFH (20-25, 25-21, 25-19, 14-25, 15-10)
Þróttur Fjarðabyggð 0-3 Afturelding (20-25, 15-25, 17-25)
HK 3-1 KA (22-25, 25-22, 25-22,25-20). Elísabet og Helena Einarsdætur voru stigahæstar hjá HK með 14 og 13 stig en hjá KA var Lucia Martin Carrasco stigahæst með 21 stig.