HK bikarmeistari kvenna í sjöunda skipti eftir 3-1 sigur á KA

Mynd: Mummi Lú

HK varð í dag bikarmeistari kvenna í sjöunda skipti eftir 3-1 sigur á KA í úrslitaleik Kjörísbikarsins.

Að venju mátti búast við miklum spennuleik eins og venjan hefur verið milli þessara liða undanfarin ár. Liðin tvö mættust um síðustu helgi í leik um deildarmeistaratitilinn en þar hafði HK betur í hörkuleik 3-1.

Fyrir leik var veitt heiðursviðurkenning til minningar um Mundínu Ásdísi Kristinsdóttir en Hrafnhildur Brynjólfsdóttir hlýtur Eldmóður – Minningarskjöldur Mundu 2026.

HK byrjaði leikinn í dag af miklum krafti, voru fljótt komnar í 6-2 eftir tvo ása frá Örnu Sólrúnu en KA átti í miklum erfiðleikum með uppgjafir HK í leiknum. HK vann fyrstu hrinu nokkuð öruggt 25-17.

HK virtist ætla að endurtaka leikinn í annarri hrinu, fyrirliði liðsins Líney Inga skoraði ás strax í fyrstu uppgjöf og HK komust svo í 3-0. KA liðinu virtist hinsvegar ætla að takast betur að stoppa sterkt lið HK og náðu þær að jafna leikinn 3-3. HK var ekki á sama máli og áður en langt var liðið var HK komið í 12-6. KA var alltaf skrefinu á eftir en héldu þó betur í við HK heldur en í fyrstu hrinu. HK sigraði aðra hrinu 25-20.

HK var því komið í vænlega stöðu í leiknum en mættu hálf kærulausar í þriðju hrinu. KA gekk á lagið og voru með mikla yfirburði. KA liðið lék á alls oddi en 2 ásar frá Juliu Bonet tryggðu KA yfirburðar sigur 25-14.

KA hélt sama krafti í fjórðu hrinu og komust þær í 3-0. Eftir að HK jafnaði 3-3 tók við hörku hrina þar sem liðin skiptust á stigum. Bæði lið sýndu frábæra takta bæði varnar og sóknarlega og ætlaði hvorugt liðið að gefa frá sér hrinuna. KA leiddi megnið af hrinunni og virtust ætla að tryggja sér oddahrinu. Eftir að hafa jafnað 19-19 var það HK sem tók völdin og fóru þær að lokum með sigur 25-20 og tryggðu sér þar með sinn sjötta bikarmeistaratitil.

Stigahæst í leiknum var Lucia Martin Carrasco leikmaður KA með 20 stig. Stigahæst í liði HK var Elísabet Einarsdóttir með 17 stig.

Elísabet Einarsdóttir var svo valin leikmaður leiksins.

Volleyball.is óskar HK til hamingju með bikarmeistaratitilinn.