Helena Kristjánsdóttir er Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar 2025

Mynd fengin af heimasíðu Fjarðabyggðar

Jólatörnin var ansi gjöful hjá Helenu Kristjánsdóttur en hún var útnefnd Íþróttamanneskja Þróttar Fjarðabyggðar á dögunum. Í gær var hún svo útnefnd Íþróttamanneskja Fjarðabyggðar.

Helena, sem er fædd árið 2008, átti frábært ár í bæði blaki og strandblaki en á árinu 2025 stóðu eflaust hæst gullverðlaun á EM smáþjóða í strandblaki í flokki U19. Þá vann hún einnig til bronsverðlauna á NEVZA með íslenska stúlknalandsliðinu í flokki U19. Helena leikur með Þrótti Fjarðabyggð og hefur spilað nánast hverja einustu hrinu með liðinu á þessu tímabili. Þar stýrir hún leik liðsins sem uppspilari.

Í tilkynningu Þróttar kom eftirfarandi fram: “Helena er einstaklega jákvæð og hjálpsöm og lætur fátt brjóta sig niður. Hún passar upp á liðsheildina og stendur með þeim sem eiga undir högg að sækja félagslega í liðinu og gætir þess að enginn sé einn og afskiptur. Hún gengur í öll verk innan blakdeildarinnar og er frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur Þróttar og erum við hjá Þrótti einstaklega stolt af þessari íþróttakonu okkar.”

Volleyball.is óskar Helenu innilega til hamingju með titlana. Nánar má lesa um málið á heimasíðu Fjarðabyggðar.