Heimsmeistaramót kvenna hefst á morgun

Heimsmeistaramót kvenna hefst á morgun, 22. ágúst en mótið fer fram í Tælandi.

32 lið taka þátt á mótinu sem lýkur með úrsitaleik þann 7. september í Bangkok.

Mótið hefst á tveimur leikjum, annarsvegar viðureign Púertó Ríkó og Frakklands og hinsvegar Tékklands og Argentínu en þeir leikir fara fram kl 09:00.

Aðrir leikir á morgun eru eftirfarandi:

  • Holland – Svíþjóð, 10:00
  • Belgía – Kúba, 10:00
  • Brasilía – Grikkland, 12:30
  • Bandaríkin – Slóvenía, 12:30
  • Tæland – Egyptaland, 13:30
  • Ítalía – Slóvakía, 13:30
Yfirlit yfir riðlana
Yfirlit yfir riðla mótsins

Úrslit og leikjaplan mótsins má sjá hér

En leikina sjálfa er hægt að sjá á Volleyball World TV.