Heimsmeistaramót félagsliða í kvennaflokki farið af stað

Í dag hófst HM félagsliða í kvennaflokki en mótið fer fram í Sao Paulo í Brasilíu.

8 lið taka þátt og eru þau eftirfarandi:

  • Osasco São Cristóvão Saúde – Brasilía ( Gestgjafar )
  • Prosecco Doc Imoco Conegliano – Ítalía ( Evrópumeistarar félagsliða )
  • Savino Del Bene Scandicci – Ítalía ( 2.sæti á Evrópumóti félagsliða )
  • Zhetysu VC – Kasakstan ( Asíumeistarar )
  • Dentil Praia – Brasilía ( Suður-Ameríkumeistarar )
  • Alianza Lima – Perú ( 2.sæti á Suður-Ameríku leikunum )
  • Zamalek SC – Egyptaland ( Afríkumeistarar )
  • Orlando Valkyries – Bandaríkin ( Wild Card )

Þessum 8 liðum er skipt í 2 riðla þar sem allir spila við alla. Efstu tvo liðin í hvorum riðli halda svo áfram.

3 leikir eru þegar búnir og voru úrslitin eftirfarandi:

Dentil Praia – Zamalek SC 3-0 (25-11, 25-17, 25-15)

Stigahæstar í leiknum voru Maria Koleva og Milka Marcília Medeiros Silva leikmenn Dentil Praia með 13 stig hvor.

Prosecco Doc Imoco Conegliano – Orlando Valkyries 3-0 (25-14, 25-13, 25-19)

Stigahæst í leiknum var hin sænska Isabelle Haak leikmaður Prosecco Doc Imoco Conegliano með 21 stig.

Zhetysu VC – Savino Del Bene Scandicci 0-3 (22-25, 21-25, 20-25)

Stigahæst í leiknum var Ekaterina Antropova leikmaður Savino Del Bene Scandicci með 19 stig.

 

Einn leikur er svo í gangi en það er viðureign Osasco São Cristóvão Saúde og Alianza Lima.

Nánari upplýsingar um mótið er að finna hér.