Hamar vann Þrótt R í spennuleik

Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í kvöld en þar mættust Þróttur Reykjavík og Hamar í Laugardalshöll. Bæði lið eru í harðri baráttu við topp deildarinnar.

Fyrir leik kvöldsins voru liðin í 2. og 3. sæti deildarinnar en það voru heimamenn í Þrótti R sem byrjuðu betur. Eftir að hafa náð afgerandi forystu í fyrstu hrinu jafnaðist leikurinn aðeins út en það dugði ekki til fyrir Hamar. Þróttarar unnu fyrstu hrinu og bættu svo enn frekar í þegar önnur hrina fór af stað. Þar leiddu heimamenn aftur um miðja hrinuna en í þetta skiptið jókst forystan undir lokin og Þróttur R tók 2-0 forystu.

Hvergerðingar sneru dæminu við í þriðju hrinunni en eftir jafna byrjun kom sterkur kafli gestanna um miðja hrinu. Smám saman jókst forskotið og þeir unnu öruggan sigur til að halda lífi í leiknum. Fjórða hrinan þróaðist svo á svipaðan hátt þar sem Hamar náði forskoti snemma og byggði ofan á það út alla hrinuna. Úrslitin réðust því í oddahrinu en eftir æsispennandi lokahrinu hafði Hamar betur 16-18. Hamar sneri því stöðunni úr 2-0 í 2-3 og nær þar með í tvö mikilvæg stig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn.

Þróttur Reykjavík 2-3 Hamar (25-22, 25-18, 18-25, 18-25, 16-18)

Eftir leik kvöldsins eru KA og Hamar jöfn í efsta sæti deildarinnar en bæði lið eru með 31 stig eftir 13 leiki. Þróttur Reykjavík er einnig með 31 stig en eftir 15 leiki. Í fjórða sætinu er svo Afturelding með 29 stig eftir 13 leiki. Spennan er því mikil og fjögur lið í baráttunni um toppsætið. Unbroken deild karla heldur áfram þann 14. janúar en þar mætast Afturelding og Hamar í enn einum toppslagnum. Keppni heldur svo áfram af fullum krafti helgina 16.-18. janúar.