Unbroken deildir karla og kvenna héldu áfram í kvöld með tveimur leikjum þegar tvíhöfði fór fram að Varmá.
Afturelding og Hamar hófu leik í karlaflokki en bæði lið léku sinn fyrsta deildarleik í kvöld. Hamar hafði þó mætt KA í Meistarakeppni BLÍ og vann þar fyrsta titil tímabilsins. Það voru Hvergerðingar sem byrjuðu mun betur og unnu sannfærandi sigur í fyrstu hrinu. Önnur hrinan var mun jafnari en Hamar tryggði sigur með góðum lokakafla. Dæmið snerist við í þriðju hrinu þar sem að Afturelding vann afar auðveldan sigur og Mosfellingar virtust ætla að koma leiknum í oddahrinu þegar þeir leiddu 24-19 í fjórðu hrinunni. Hamar átti ótrúlegan lokakafla og vann 24-26 sem tryggði 1-3 sigur og fyrstu stig Hamars í deildarkeppninni þetta tímabilið.
Beint í kjölfar karlaleiksins mættust Afturelding og HK Ýmir í Unbroken deild kvenna. Gestaliðið tekur þátt í efstu deild í fyrsta sinn en liðið samanstendur af yngri leikmönnum úr röðum HK. Ljóst var að verkefni kvöldsins yrði ærið enda Afturelding með vel mannað lið. Afturelding vann fyrstu hrinu auðveldlega en Kópavogsstúlkur komust á betra skrið í annarri hrinu. Aftur unnu Mosfellingar þó þægilegan sigur og þrátt fyrir að HK Ýmir léki betur með hverri hrinu var Afturelding mun sterkari aðilinn og vann 3-0 sigur.
Unbroken deild karla heldur áfram um helgina þegar fjölmargir leikir fara fram en næstu leikir í Unbroken deild kvenna fara fram miðvikudaginn 7. október.
Úrslit dagsins – Þriðjudagur 29. september
Unbroken deild karla: Afturelding 1-3 Hamar (19-25, 21-25, 25-14, 24-26).
Unbroken deild kvenna: Afturelding 3-0 HK Ýmir (25-8, 25-13, 25-19).