HK og Hamar mættust í eina leik Unbroken deildar karla í kvöld. Staða liðanna í deildinni er mjög ólík og mátti Hamar ekki við því að misstíga sig í hnífjafnri toppbaráttu.
Liðin höfðu mæst tvisvar á leiktíðinni og hafði Hamar betur 3-0 í bæði skiptin. Leikur kvöldsins var hins vegar afar jafn til að byrja með og var það ekki fyrr en um miðja hrinu sem Hamar seig fram úr. Þá komust gestirnir þó á gott skrið og enduðu hrinuna með nokkuð þægilegum 21-25 sigri. Önnur hrinan var öllu ójafnari en þar leiddi Hamar allt frá upphafi og vann 19-25. Þriðja hrinan var svo einnig í höndum gestanna frá upphafi og lauk henni 16-25. Hamar vann því öruggan 0-3 sigur í Digranesi.
Með sigri kvöldsins endurheimtir Hamar toppsæti deildarinnar en þeir eru nú með 41 stig eftir 17 leiki. Pakkinn á toppnum er þó enn afar þéttur og gæti staðan breyst á augabragði.
Keppni í Unbroken deild karla heldur áfram á laugardag þegar Þróttur Fjarðabyggð mætir Vestra í Neskaupstað. Á sunnudeginum taka Þróttarar svo á móti Hamri.