Hamar með 4 stiga forskot á toppi Unbroken deildar karla eftir sigur á KA

Hamar og KA mættust að öðru sinni um helgina en nú var það í Unbroken deildinni. Liðin mættust einnig í gær í 8 liða úrslitum Kjörísbikarsins þar sem Hamar hafði betur 3-0.

KA kom af töluverðum krafti inní leikinn og virtust staðráðnir í að hefna fyrir tap gærdagsins. KA fór með yfirburðar sigur í fyrstu hrinu 25-11. Önnur hrina var maraþon hrina þar heimamenn leiddu lengi framan af. Eftir að KA náði að jafna 23-23 tók við maraþon kafli þar sem hvorugt liðið vildi gefa eftir. Endaði hrinan með sigri Hamars 32-30.

KA menn komu svo af miklum krafti inní þriðju hrinu og voru fljótt komnir í 6-1. KA hafði mikla yfirburði í hrinunni lengi vel en undir miðja hrinu slaka þeir á og hleypa heimamönnum inní hrinuna. Hamar nýtti sér það og snéri hrinunni sér í vil og enduðu á að vinna þriðju hrinu 25-22. Fjórða hrinan endaði svo með sigri Hamars 25-19 og 3-1 sigur í höfn.

Hamar er því með sigrinum komið með 4 stiga forskot á toppi Unbroken deildar karla. KA situr enn í 4. sæti með 33 stig. 5 stigum á eftir Hamri.

Stigahæstur í leiknum var Miguel Mateo Castrillo leikmaður KA með 22 stig. Stigahæstur í liði Hamars var Deniss Pavlovs með 21 stig.