Hamar í undanúrslit Kjörísbikar karla eftir sigur á KA

Seinni leikur dagsins í 8 liða úrslitum í Kjörísbikar karla var viðureign Hamars og KA en leikurinn fór fram í Hveragerði.

Fyrsta hrina leiksins fór vel af stað og voru liðin hnífjöfn að stigum. Heimamenn sigu þó aðeins framúr undir lokin en KA mönnum gekk illa að komast í gegnum þétta hávörn Hamars. Ekkert gekk upp hjá KA undir lokinn og virtust Hamar ætla að vinna hrinuna fremur sannfærandi. KA menn gáfust þó ekki upp og náðu aðeins að klóra í bakkann, það reyndist þó ekki nóg og vann Hamar fyrstu hrinuna 25-21.

KA menn komu beittari til leiks í annarri hrinu og voru með yfirhöndina til að byrja með. Hamar voru þó ekki lengi að snúa þessu við og jafna leikinn. Enn var það öflug hávörn Hamars sem var að valda KA vandræðum. Heimamenn gáfu allt í botn og virtist KA ekki eiga nein svör. Öflugar uppgjafir frá Zdravko Kamenov héldu KA hinsvegar inní leiknum, það reyndist þó ekki nóg og fór Hamar með sigur 25-22.

Mikið jafnræði var með liðunum í þriðju hrinu og ljóst að KA þyrftu að gera mikið betur ef þeir ætluðu sér að eiga séns á að snúa leiknum við. Undir miðja hrinu náðu heimamenn tökum á leiknum og þá var ekki aftur snúið. Hamar vann þriðju hrinuna 25-19 og leikinn þar með 3-0.

Hamar eru því komnir áfram í undanúrslit Kjörísbikarsins.