Fjölmargir leikir fóru fram um helgina en í Unbroken deild karla hélt fjörið áfram með þremur leikjum í dag. Hamar gat tryggt sér deildarmeistaratitilinn með hagstæðum úrslitum.
Í dag fóru fram seinni leikir helgarinnar í þremur tilvikum þar sem að sömu lið mættust og gerðu í gær. Fjörið í dag hófst á Húsavík þar sem að Völsungur tók á móti Þrótti Fjarðabyggð en í gær hafði Völsungur betur 3-2. Gestirnir byrjuðu hins vegar mun betur í dag og höfðu öruggt forskot strax um miðja fyrstu hrinu. Þróttur vann hana þægilega en spennan jókst í næstu hrinum. Völsungur vann aðra hrinuna eftir upphækkun og Þróttarar unnu þriðju hrinu eftir jafnan leik. Gestirnir frá Neskaupstað tryggðu svo 1-3 sigur með sannfærandi sigri í fjórðu hrinu.
Vestri tók á móti Hamri á Ísafirði og var mikið jafnræði með liðunum í upphafi leiks. Hamar náði afgerandi forystu um miðja hrinu en frábær endurkoma Ísfirðinga gerði það að verkum að leikurinn varð jafn 24-24. Hamar skoraði þó síðustu tvö stigin og tók 0-1 forystu. Svipaða sögu var að segja af annarri hrinu þar sem Hamar leiddi og Vestri saxaði á forystuna undir lok hrinunnar. Aftur hafði Hamar betur og kláruðu svo dæmið með auðveldum sigri í þriðju hrinunni. Hamar vann því 0-3 og tók risastórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum.
KA og Afturelding mættust í lokaleik dagsins en úrslitin þar gátu tryggt Hamarsmönnum deildarmeistaratitilinn. Ef leikurinn færi í oddahrinu myndu bæði lið tapa stigum og ekki lengur eiga möguleika á að ná efsta sætinu. Liðin mættust í gær þar sem að KA vann 3-2 sigur en Afturelding byrjaði frábærlega í dag. Gestirnir úr Mosfellsbæ leiddu 13-17 þegar allt fór í baklás og skoraði KA næstu 9 stig. Það dugði heimamönnum sem unnu naumlega. Önnur hrina var töluvert jafnari en KA var skrefi á undan alla hrinuna. KA vann aftur og náði því 2-0 forystu á heimavelli.
Aftur var jafnræði með liðunum í þriðju hrinunni en eftir að jafnt var 10-10 seig KA fram úr og náði mest fjögurra stiga forskoti. Aftur náði Afturelding að jafna undir lok hrinunnar en allt kom fyrir ekki. KA gerði betur undir lokin og vann hrinuna sem tryggði 3-0 sigur og öll þrjú stigin. KA á því enn möguleika á að ná toppsæti deildarinnar.
Deildarkeppni í Unbroken deildum karla og kvenna lýkur næstu helgi en Hamar leikur lokaleik sinn gegn Þrótti Reykjavík föstudagskvöldið 6. mars. Ef Hamar nælir í að minnsta kosti eitt stig gegn Þrótti R verða þeir deildarmeistarar. Laugardag og sunnudag fara svo alls 6 karlaleikir fram og mun staða liðanna þar með skýrast endanlega. Stigatöfluna má sjá hér neðar en með því að smella hér má sjá leikjadagskrá deildarinnar.
Úrslit dagsins í Unbroken deild karla – Sunnudagur 1. mars
Völsungur 1-3 Þróttur Fjarðabyggð (19-25, 27-25, 22-25, 18-25). Juan Manuel Balnquer var stigahæstur heimamanna með 19 stig en Raul Garcia Asensio skoraði 32 stig fyrir Þrótt Fjarðabyggð.
Vestri 0-3 Hamar (24-26, 21-25, 12-25)
KA 3-0 Afturelding (25-23, 25-22, 25-22)
