Topplið Hamars sótti Þrótt Fjarðabyggð heim í dag í Unbroken deild karla. Hamar gat aukið forskot sitt á toppi deildarinnar í 4 stig með sigri en Þróttarar nálgast Vestra óðfluga um miðja deild.
Heimamenn í Þrótti mættu Vestra í gær og unnu þar 3-0 sigur. Þar með voru þeir aðeins þremur stigum á eftir Ísfirðingum í deildinni en þeirra beið erfitt verkefni í dag þegar Hvergerðingar komu í heimsókn. Þróttarar léku án síns stigahæsta leikmanns, Raul Garcia Asensio, svo ljóst var að allt þyrfti að ganga upp til að ná í sigur gegn sterku liði Hamars.
Fyrsta hrina spilaðist nokkurn veginn eftir því sem við mátti búast þar sem að Hamar vann auðveldan 16-25 sigur. Munurinn var mikill á liðunum og Þróttarar veittu ekki mikla mótspyrnu í hrinunni. Meira jafnræði var með liðunum í annarri hrinu en Hamar seig þó fram úr um miðbik hrinunnar. Gestirnir unnu 19-25 og gátu klárað dæmið í þriðju hrinunni.
Það varð fljótt ljóst hvernig þriðju hrinu myndi ljúka en Hamar hafði yfirhöndina allt frá upphafi hrinunnar. Þeir unnu á endanum 17-25 og tryggðu öruggan 0-3 sigur. Hamarsmenn fara því sáttir suður en Þróttarar sækja 3 af 6 mögulegum stigum úr sínum tveimur leikjum þessa helgina.
Hamar eykur forskot sitt á toppi deildarinnar með sigrinum í dag. Liðið hefur nú 4 stiga forystu á Þrótt Reykjavík sem situr í 2. sætinu en KA (3. sæti) og Afturelding (4. sæti) eiga þó leiki til góða á bæði Hamar og Þrótt R. Þróttur Fjarðabyggð er enn 6. sæti Unbroken deildarinnar, 3 stigum á eftir Vestra en 9 stigum á undan Völsungi.
Afturelding og Þróttur Reykjavík mætast í stórleik á miðvikudagskvöldið en leikurinn hefst 19:30 í Myntkauphöllinni í Mosfellsbæ. Þróttur F og Hamar fá hins vegar pásu og leika næst 28. febrúar.