Hamar ekki í miklum vandræðum með Þrótt Reykjavík

Einn leikur fór fram í Unbroken deild karla í kvöld þegar Hamar tók á móti Þrótti Reykjavík í Hveragerði.

Topplið Hamars tók á móti Þrótti Reykjavík í Unbroken deild karla í kvöld en gestirnir náðu ekki að veita heimamönnum mikla mótspyrnu og fór Hamar með nokkuð þægilegan sigur 3-0 (25-18, 25-20, 25-17).

Hamar er sem stendur á toppi Unbroken deildar karla með 26 stig eftir 10 leiki, 6 stigum meira en KA sem sitja í öðru sæti með 20 stig eftir 9 leiki.

Þróttur Reykjavík situr svo í þriðja sæti með 18 stig eftir 9 leiki.

4 leikir fara fram í Unbroken deild karla um helgina.

22.11, Völsungur – HK
22.11, Þróttur Fjarðarbyggð – KA
23.11, Þróttur Fjarðarbyggð – KA
23.11, Vestri – Þróttur Reykjavík