Hamar tók á móti Þrótti Reykjavík í Unbrokendeild karla í kvöld en Hvergerðingar áttu möguleika á að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Þeir þurftu að ná sér í eitt stig til að tryggja efsta sætið og titilinn.
Jafnræði var með liðunum til að byrja með en fljótlega stungu Hamarsmenn af. Hamar vann fyrstu hrinuna sannfærandi, 25-16, og tók 1-0 forystu. Önnur hrina var nokkuð jafnari en Hamar leiddi þó stærstan hluta hrinunnar. Hamar náði ekki að hrista Þróttara af sér fyrr en undir lokin og breytti stöðunni úr 17-17 í 25-18. Hamar náði þar með 2-0 forystu og hafði þá tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Unbroken deild karla 2026.
Leiknum var þó ekki lokið en eftir æsispennandi lokakafla kláraði Hamar 25-23 sigur og vann leikinn því 3-0 á heimavelli. Liðið gat því fagnað vel í leikslok þegar Hvergerðingar tóku við verðlaunum fyrir deildarmeistaratitilinn. Síðustu leikir deildarinnar fara fram um helgina en ljóst er að Þróttur R lýkur keppni í 4. sæti deildarinnar. KA og Afturelding, sem eru í 2. og 3. sæti, fylgja Hamri og Þrótti R í úrslitakeppnina en liðin munu berjast um 2. sætið um helgina.
Volleyball.is óskar Hamarsfólki til hamingju með titilinn!